Þetta er höfðinglegur gjörningur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 18. apríl 2016 15:15 Erlendur í pontu eftir móttöku myndanna hans Óskars. Á bak við hann sést ljósmynd sem sýnir biðröðina eftir miðum á Síðasta bæinn í dalnum. Vísir/Anton Brink „
Fólk er ekki alltaf að hugsa um það í nútímanum að Íslendingar hafi verið farnir að sýna leiknar bíómyndir í kvikmyndahúsum um miðja síðustu öld, sem voru svo vinsælar að það voru biðraðir frá miðasöluopinu og hálfa leið í kringum húsið,“ segir Erlendur Sveinsson, forstöðumaður Kvikmyndasafns Íslands. Tilefni ummælanna er að safninu áskotnuðust nýlega allar kvikmyndir Óskars Gíslasonar, brautryðjanda í kvikmyndun á Íslandi. Fjölskylda Óskars afhenti þær formlega en þær höfðu verið varðveittar í safninu um árabil. Auk þess eignaðist safnið gögn og margvíslega gripi sem Óskar lét eftir sig. „Það er merkilegt fyrir kvikmyndasafnið að fá fullan yfirráðarétt yfir þessu mikla framlagi Óskars til íslenskrar kvikmyndagerðar sem eru bæði leiknar myndir sem voru sýndar í samkeppni við leiknar myndir Lofts Guðmundssonar, og síðan þetta gríðarlega magn merkilegra heimildamynda sem Óskar hefur gert. Þetta er höfðinglegur gjörningur því þjóðinni er í raun gefinn þessi arfur,“ segir Erlendur. Fyrsta mynd Óskars lifir enn með þjóðinni, Síðasti bærinn í dalnum. „Í Síðasta bænum í dalnum náði Óskar að fanga eitthvað sem undirmeðvitund þjóðarinnar vill vita um og varðar rætur okkar - þessa ömmuveröld. Enda sagði Óskar sjálfur að hann hefði endursýnt þá mynd á tíu ára fresti, gjarnan í Tjarnarbíói og hún hefði alltaf virkað sem ný. Auðvitað ber sú mynd merki fjárskorts og frumstæðra tækja, það var enginn alvöru kvikmyndaiðnaður orðinn til í landinu. Engu að síður er hún mikils virði.“Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson þakkaði fjölskyldu Óskars fyrir gjöfina til þjóðarinnar. Hér tekur hann í höndina á Alvari Óskarssyni.Í heimildarmyndapakkanum sem Óskar lét eftir sig segir Erlendur eina mynd skera sig úr og seint verða toppaða. Það er Björgunarafrekið við Látrabjarg. Framleiðslusaga þeirrar myndar var einstæð því þegar tökur stóðu yfir, ári eftir björgunarafrekið, strandaði annað skip á sama stað svo menn þurftu að fara í raunverulega björgun. Erlendur nefnir líka heilmikinn myndabálk um Reykjavík sem var tekinn rétt fyrir miðja síðustu öld, Reykjavík vorra daga. „Það er freistandi fyrir alla sem fást við þetta tímabil bæði í sjónvarpsefni og kvikmyndum að leita í þann sjóð,“ segir hann. Erlendur segir brýnt að koma upp sýningaraðstöðu í kvikmyndasafninu, sem er á Hvaleyrarbraut 13 í Hafnarfirði. Einnig þarfnist safnið nauðsynlega nýs skanna til að geta komið kvikmyndaarfinum í form sem nútíminn geti nýtt sér.
Menning Mest lesið Herra Hnetusmjör fagnar fyrir fullri Laugardalshöll Tónlist Fréttatía vikunnar: Jake Paul, Rúmeni og Bakgarðshlaup Lífið Þrjú hundruð kórbörn frumflytji lagið á morgun Tónlist Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Menning Oddvitaáskorunin: Sneri heim vegna fjölskyldunnar Lífið Konan sem skaut Spider Sabich til bana er látin Lífið Framboð án eftirspurnar: Óvinsælustu örframboðin í sögu borgarinnar Lífið „Þetta var erfiðasta ár lífs míns“ Tónlist Sveinn Andri og Vigdís keyptu ótrúlega íbúð á besta stað Lífið Geltandi Britney sögð hafa ógnað gestum veitingastaðar Lífið Fleiri fréttir Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira