Framleiðslustopp hjá Toyota vegna skjálftans í Japan Finnur Thorlacius skrifar 18. apríl 2016 15:15 Jarðskjálftinn í Japan orsakaði mikla eyðileggingu.
Töpuð bílaframleiðsla hjá bílaframleiðandanum Toyota í Japan gæti náð 56.000 Toyota og Lexus bílum, auk 7.500 Daihatsu bíla, en Daihatsu merkið tilheyrir Toyota. Skjálftinn hefur haft þau áhrif að íhlutir frá skjálftasvæðunum berast ekki verksmiðjum Toyota. Toyota Motor Corp. hefur varað hluthafa við því að þessi stöðvun á framleiðslu geti orsakað 30 milljarða yena tapaðan hagnað á öðrum ársfjórðungi, eða sem nemur 34 milljörðum króna. Áhrifin gætu reyndar einnig haft áhrif á þriðja ársfjórðungi ef ekki tekst að byggja aftur hratt upp skemmdir vegna skjálftans. Framleiðsla í verksmiðjum Toyota í Kyushu stöðvuðust í síðustu viku og mun breiðast út til annarra verksmiðja Toyota í Japan í þessari viku. Stóri jarðskjálftinn sem kom af stað sjávarflóðinu mikla árið 2011 hafði enn meiri áhrif á framleiðslu Toyota og því hafa jarðskjálftar á síðustu 5 árum leikið Toyota grátt. Jarðskjálftinn nú hefur einnig haft áhrif á framleiðslu Mitsubishi og mótorhjólaframleiðslu Honda. Þar sem framleiðsla Toyota er meira bundin við heimalandið en hjá öðrum japönskum bílaframleiðendum eru áhrifin mest hjá Toyota. Toyota framleiddi ríflega 4 milljónir bíla í Japan í fyrra, eða um 40% af heimsframleiðslu fyrirtækisins. Nissan og Honda er hinsvegar aðeins með 17% og 16% framleiðslu sinnar í Japan. Hlutabréf í Toyota lækkuðu grimmt á hlutabréfamarkaðnum í Tokyo í kjölfa skjálftans, eða mest um 6,8% en jafnaði sig í 5,1% lækkun í morgun. Bréf í Toyota hafa fallið um 27% í ár.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Galin vinnubrögð“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent