Ótrúlegur fyrrum hárstíll Top Gear manna Finnur Thorlacius skrifar 19. apríl 2016 15:00 Magnaður hárstíll og ef til vill lýsandi fyrir karakter þeirra allra.
Það er val hvers og eins hvort taka eigi mark á dómum fyrrum Top Gear þríeykisins á bílum. Eitt er þó alveg víst að þeir eru slæmir ráðgjafar þegar kemur að hárstíl, ef marka má þá mynd sem hér sést af þeim félögum. Ef til vill ættu Bretar að forðast þær hárgreiðslustofur sem þeir nota allra jafna. Það skal þó hafa í huga að þessar myndir af köppunum voru teknar af þeim á síðasta áratug síðustu aldar og hártískan þá á líklega ekki uppá pallborðið nú á tímum. Það var háðfuglinn Jeremy Clarkson sem setti þessar myndir á samskiptamiðla og lét þau orð falla að þó svo þeir Richard Hammond væru slæmir á þessum myndum þá slái James May þeim við með skóladrengjaklippingu sinni. Hann er þó magnaður "Afro"-stíll Clarksons sjálfs og Richard Hammond er eins og indjánahöfðingi á sléttum Ameríku. Synd að þeir hafi allir breytt um stíl!
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent