Volvo XC90 T8 frumsýndur á laugardaginn Finnur Thorlacius skrifar 16. mars 2016 11:02 Volvo XC90 T8 jeppinn er Plug-In-Hybrid bíll.
Brimborg frumsýnir Volvo XC90 T8 á laugardaginn milli kl. 12 og 16 í sýningarsal Volvo að Bíldshöfða 6. Volvo XC90 T8 býður upp á samsetningu af afli, eyðslu og mengunarlosun sem ekki hefur verið í boði áður. Aflið í T8 tvinnvélinni er geysimikið eða 407 hestöfl og fæst með rafmótor og bensínvél. Hröðunin er 5,6 sekúndur frá 0-100 km/klst og togið er 640 Nm. Eldsneytiseyðsla T8 tvinnvélarinnar í blönduðum akstri er aðeins 2,1 l/100 km og CO2 losunin er einungis 49 g/km. Frá því að Volvo XC90 var frumsýndur hefur hann fengið yfir 100 verðlaun um heim allan, þar á meðal titilinn bíll ársins 2016 á Íslandi. Volvo XC90 er fjórhjóladrifinn, 7 manna lúxusjeppi með mikla veghæð eða 23,7 cm undir lægsta punkt. Hann býr jafnframt yfir fullkomnasta öryggisstaðalbúnaði á markaðnum. Það kemur því ekki á óvart að hann var valinn öruggasti jeppinn í sínum flokki árið 2015 af umferðar- og öryggisstofnuninni Euro NCAP. Volvo XC90 T8 kostar frá 12.690.000 kr.
Mest lesið Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí Erlent Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent „Dýrlegt veður eins langt og séð verður“ Veður Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Innlent Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent