Oreo ostakökubrownie að hætti Evu Laufeyjar 6. mars 2016 13:47 visir.is/evalaufey
OstakökubrownieBrownies uppskrift:150 g smjör250 g súkkulaði t.d. suðusúkkulaði200 g sykur2 stór egg100 g KORNAX hveiti1 tsk vanillusykur2 msk kakó6 - 8 Oreo kexkökurKaramellufylling700 g rjómaostur (1 1/2 askja frá MS)2 msk rjómi2 msk flórsykur12 OREO kexkökur Súkkulaðikrem ofan á:250 g suðusúkkulaði Aðferð: Hitið ofninn í 170°C (blástur). Bræðið smjör við vægan hita, saxið súkkulaðið og bætið því við smjörið og leyfið því að bráðna í smjörinu. Takið pottinn af hellunni og leyfið súkkulaðiblöndunni að kólna. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður létt og ljós. Bætið vanillu, hveiti og kakó saman við og hrærið þar til deigið er silkimjúkt. Í lokin hellið þið súkkulaðiblöndunni við og blandið vel saman. Hellið deiginu í pappírsklætt form (20x20), brjótið Oreo kökurnar eða setjið þær í heilu lagi ofan í deigið. Bakið við 170°C í 30 mínútur. Það er mjög mikilvægt að leyfa kökunni að kólna alveg í forminu. (best að setja hana í kæli) Á meðan kakan er í kæli hrærið þið saman rjómaosti, rjóma og flórsykri. Það er gott að hafa rjómaostinn við stofuhita en þá er þægilegra að hræra hann. Þegar blandan verður létt saxið þið niður OREO kökur og blandið við með sleikju. Dreifið blöndunni yfir kalda brownies köku og inn í ísskáp á ný. Ostaköku blandan þarf að vera köld og stíf er súkkulaðikremið fer yfir. Bræðið mjólkursúkkulaði yfir vatnsbaði og hellið yfir kökuna í lokin. Kælið og þegar súkkulaðið er orðið hart þá er kakan tilbúin, skerið hana í bita og berið strax fram. Njótið vel.
Eva Laufey Kökur og tertur Ostakökur Súkkulaðikaka Uppskriftir Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp