Breytingar í atvinnubíladeild Mercedes Benz Finnur Thorlacius skrifar 7. mars 2016 09:46 Eiríkur, Finnbogi og Sigurður sjást hér fyrir utan atvinnubíladeild Öskju að Kletthálsi 2.
Breytingar hafa orðið í söludeild Mercedes-Benz atvinnubíla hjá Bílaumboðinu Öskju sem miða að því að stækka og efla deildina enn frekar. Mercedes-Benz er stærsti framleiðandi lúxus- og atvinnubíla í heiminum og hér á landi hefur sala atvinnubíla frá framleiðandanum verið mjög mikil undanfarin ár. Nýr sölustjóri atvinnubíla er Finnbogi Óskar Ómarsson en hann kemur úr hópbifreiðageiranum. Hann býr að þekkingu og reynslu úr greininni og starfaði sem rekstrarstjóri SBA – Norðurleið frá 2008 til 2015 og síðast sem verkefnastjóri hjá Kynnisferðum. Finnbogi er einnig í MBA námi við Háskóla Íslands. Tveir nýir starfsmenn söludeildar atvinnubíla eru Eiríkur Þór Eiríksson og Sigurður Einar Steinsson. Eiríkur Þór er nýr sölumaður vöru- og dráttarbíla. Hann kemur með mikla reynslu og þekkingu sem skilar sér til viðskiptavina deildarinnar. Eiríkur starfaði um nokkurra ára skeið sem bílstjóri við vöru- og farþegarflutninga en lengst af rak hann tölvuþjónustuna Securstore. Sigurður Einar býr að 30 ára reynslu úr hópferðageiranum en hann starfaði fyrst hjá SBS á Selfossi og nú síðast hjá Kynnisferðum. Samhliða þessum störfum hefur hann verið ökukennari á hópbifreiðar hjá Ökuskólanum í Mjódd síðan 1993. Undanfarin ár hafa umsvif tengd hópbifreiðum aukist mikið samhliða aukinni ferðaþjónustu, enda hafa Mercedes-Benz hópbifreiðar verið mjög vinsælar í þeim geira. Reiknað er með frekari vexti ferðaþjónustunnar og samhliða þeirri þróun hefur verið ákveðið að bæta við sölumanni í atvinnubíladeild Mercedes-Benz sem sérhæfir sig í sölu hópferðabíla. Agnar Daníelsson og Páll H. Halldórsson hafa látið af störfum í atvinnubíladeild Mercedes-Benz og ákveðið að snúa sér að nýjum verkefnum. Agnar var áður sölustjóri deildarinnar og Páll sölustjóri vörubíla og eiga þeir stóran þátt í uppbyggingu deildarinnar. Söludeild atvinnubíla hefur vaxið mikið undanfarin ár samhliða auknum umsvifum í atvinnulífinu og hafa bæði Agnar og Páll, ásamt öflugum hópi samstarfsfélaga stuðlað að því.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent