Allt litrófið í tónum og stemningu Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. febrúar 2016 08:45 Aladár Rácz, Gunnhildur Halla og Ármann Helgason, Mynd/úr einkasafni „
Við flytjum verk sem lítið eða ekkert hafa heyrst hér á landi þar sem farið er yfir allt litrófið í tónum og stemningu. Efnisskráin er einkar flott og hljóðfærin klarinetta, selló og píanó blandast vel saman því þau geta myndað ótrúlegan hljóðheim,“ segir Ármann Helgason klarinettuleikari sem spilar í Hafnarborg í Hafnarfirði í kvöld, sunnudag, klukkan 20, ásamt þeim Aladár Rácz píanóleikara, og Gunnhildi Höllu Guðmundsdóttur sellóleikara.“ Á efnisskrá eru verk eftir Toshio Hosokawa (f. 1955) og eldri tónskáld eins og Þorkell Sigurbjörnsson, Per Nørgaard og Robert Muczynski. Ármann segir þá alla hafa mótað sína listrænu sýn á umbrotatímum um miðja 20 öldina en fara ólíkar leiðir í persónulegri tjáningu og sköpun. Tónleikarnir nefnast Þema án tilbrigða, Ármann segir titilinn sóttan í verk Þorkels. Þeir eru þriðju tónleikar vetrarins í tónleikaröðinni Hljóðön í Hafnarborg.
Menning Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira