Tengist teiknuðu persónunum 15. febrúar 2016 13:00 Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir teiknar undir heitinu Ibegga. mynd/úr einkasafni
Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir teiknar öllum stundum. Hún skapar tilfinningaheim í kringum persónurnar sem hún teiknar og á stundum erfitt með að skilja þær við sig.„Ég er mjög sjaldan búin að ákveða hvað úr verður þegar ég byrja á teikningu. Ég byrja á að teikna augun og út frá þeim kemur tilfinningin um nýjan karakter. Yfirleitt teikna ég persónur og í huganum skapa ég tilfinningaheim í kringum þær sem enginn fær að heyra af. Ég á það til að bindast persónunum og oft finnst mér erfitt að skilja við þær,“ segir Ingibjörg Berglind Guðmundsdóttir sposk þegar hún er spurð út í teikningarnar sínar. Ingibjörg er grafískur hönnuður en teiknar í frístundum undir heitinu IBegga. Innblásturinn segist hún frá úr ýmsum áttum. „Ég fæ innblásturinn mikið frá tónlist en ef ég á að nefna einhverjar fyrirmyndir væru það helst Egon Schiele, Miro og Modigliani. Teikningarnar eru áhugamál mitt sem ég sinni eftir vinnu. Ég byrjaði reyndar að teikna mikið eftir að ég útskrifaðist sem grafískur hönnuður og velti því jafnvel fyrir mér hvort ég hefði átt að fara í fagurlistir frekar en hönnun. En oft næ ég að blanda þessu tvennu saman,“ segir Ingibjörg en hún lauk námi í grafískri hönnun frá Myndlistaskólanum á Akureyri fyrir tveimur árum. Ingibjörg vinnur teikningarnar mestmegnis með blýanti og penna. „Stundum geng ég í gegnum tímabil og nota kannski aðallega blek í myndirnar. Nú er ég til dæmis að mála mikið með gylltu ofan í blekið,“ segir Ingibjörg. Nánar má forvitnast um verk hennar á Ibegga á Instagram og Facebook.
Menning Mest lesið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Rod Stewart sýnir Ozzy taka sjálfur í himnaríki Lífið Fann ástina á Balí en nýtur hennar í Kóreu Lífið Hermína sem missti folald og móðurlaus Tígull fundu hvort annað Lífið „Stundum finnst mér hún vera farin þó hún sé enn á lífi“ Lífið „Þarna fylltist hjartað af hamingju“ Lífið Skoðanabræður hætta göngu sinni: „Takk fyrir okkur“ Lífið Menningarperlan aftur komin í sitt gamla horf Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira