Umfjöllun og viðtöl: Valur - Haukar 23-28 | Sannfærandi hjá Haukum Ingvi Þór Sæmundsson í Valshöllinni skrifar 20. janúar 2016 21:30 Karen Helga Díönudóttir fer í gegn fyrir Hauka í kvöld. vísir/stefán
Haukar eru komnir áfram í 8-liða úrslit Coca-Cola bikars kvenna í handbolta eftir fimm marka sigur, 23-28, á Val í Valshöllinni í kvöld. Haukar byrjuðu leikinn mun betur og leiddu allan tímann. Sóknarleikur Vals var skelfilegur í fyrri hálfleik en liðið skoraði aðeins eitt mark á síðustu 13 mínútum hans. Vörn Hauka var öflug bróðurpartinn af leiknum og fyrir aftan hana átti Elín Jóna Þorsteinsdóttir skínandi leik en hún varði alls 16 skot (41%). Karen Helga Díönudóttir og Ramune Pekarskyte voru markahæstar í liði Hauka með sjö mörk hvor en Maria Ines De Silve Pereira kom næst með sex mörk. Kristín Guðmundsdóttir var einu sinni sem oftar atkvæðamest hjá Val en hún skoraði 10 mörk í leiknum. Saga fyrri hálfleiks var skelfilega slakur sóknarleikur Valskvenna, hvort sem þær voru einni fleiri, einni færri eða það var jafnt í liðum. Skotógnunin fyrir utan var lítil, boltinn gekk örsjaldan út í hornin (aldrei í það vinstra) og Valur bjó ekki til eitt færi fyrir Evu Björk Hlöðversdóttur á línunni. Þá skoraði liðið aðeins eitt mark úr hraðaupphlaupi. Sóknarleikur Hauka var hins vegar beittur í upphafi leiks. Liðið keyrði grimmt í bakið á Valskonum en þrjú af fyrstu sex mörkum Hauka komu eftir hraðaupphlaup og eitt eftir hraða miðju. Heimakonur voru lengi að hlaupa til baka og varnarleikurinn var slakur framan af. Hann lagaðist mikið eftir því sem leið á fyrri hálfleikinn en sóknarleikurinn versaði hins vegar. Til marks um það skoraði Valur aðeins eitt mark á síðustu 13 mínútum fyrri hálfleik. Skelfileg tölfræði. Haukar áttu einnig í vandræðum í sókninni á köflum en vörnin var frábær og fyrir aftan hana varði Elín Jóna 10 skot, eða 59% þeirra skota sem hún fékk á sig í fyrri hálfleik. Sóknarleikur Vals lagaðist mikið í seinni hálfleik þar sem liðið skoraði 16 mörk. En þrátt fyrir það náðu heimakonur aldrei að minnka muninn í meira en fjögur mörk og sigur Hauka var því aldrei í mikilli hættu. Haukar náðu mest sjö marka forskoti og þrátt fyrir smá hikst í sóknarleiknum og full marga tapaða bolta á tímabili spiluðu gestirnir vel úr sínu. Valur tók Ramune úr umferð seinni hluta síðari hálfleiks og reyndi að hleypa leiknum upp. Þá steig Karen Helga hins vegar upp og skoraði þrjú mikilvæg mörk á fimm mínútna kafla undir lokin. Síðustu mínúturnar skiptust liðin á mörkum en það breytti engu um niðurstöðuna. Lokatölur 23-28, Haukum í vil sem verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit bikarkeppninnar.Ramune Pekarskyte lætur vaða á markið hjá Val.vísir/stefánKaren Helga: Viljum keyra upp hraðann Karen Helga Díönudóttir, fyrirliði Hauka, átti flottan leik þegar liðið lagði Val að velli, 23-28, í kvöld. Karen skoraði sjö mörk og þar af þrjú á fimm mínútna kafla undir lok leiksins. Hún var að vonum kát þegar hún ræddi við Vísi eftir leik. "Mér fannst þetta vera sanngjarn sigur. Þetta var mikil barátta allan tímann og gott að ná að landa þessu," sagði Karen. "Við erum búnar að æfa fáránlega vel í pásunni og ætlum okkur stóra hluti. Við vildum hefna fyrir tapið fyrir Val í deildinni." Haukar keyrðu grimmt í bakið á Valskonum í upphafi leiks sem skilaði liðinu ódýrum mörkum. Karen segir að það henti Haukaliðinu vel að spila svona hraðan bolta. "Við erum með þannig lið, við erum hraðar. Þegar vörnin okkar smellur saman náum við að keyra og við leggjum upp með það," sagði Karen og bætti við að Haukar hefðu gert vel í því að halda Val í hæfilegri fjarlægð í seinni hálfleiknum. Haukum hefur gengið flest í haginn í vetur en liðið er, auk þess að vera komið áfram í bikarkeppninni, í 4. sæti Olís-deildarinnar og hefur aðeins tapað tveimur af 15 leikjum sínum þar. Karen er skiljanlega sátt með gengi Hauka í vetur. "Við erum þar sem við ætluðum að vera, þannig séð. Við höfum tapað nokkrum óþarfa stigum en þurfum bara að vinna það upp eftir áramót," sagði Karen Helga að endingu.Kristín Guðmundsdóttir var markahæst hjá Val og fékk rautt.vísir/stefánAlfreð: Fimm mörk var full mikill munur í hálfleik Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Vals, sagði slakan fyrri hálfleik hafa orðið sínu liði að falli í tapinu fyrir Haukum í bikarkeppninni í kvöld. Haukar leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 7-12, og eftir það var róðurinn þungur fyrir Valskonur. "Fyrri hálfleikurinn var ekki nógu góður af okkar hálfu, það er nokkuð ljóst. Við vorum ekki rétt stilltar í upphafi leiks en héngum samt alltaf í þeim," sagði Alfreð en Valsliðið skoraði einungis eitt mark á síðustu 13 mínútum fyrri hálfleiks. "Þær áttu að vera yfir í hálfleik en mér fannst fimm mörk vera full mikill munur. Með aðeins betri byrjun hefði munurinn getað verið 2-3 mörk." Sóknarleikur Vals lagaðist í seinni hálfleik en samt tókst liðinu aldrei að minnka muninn í nema fjögur mörk. Alfreð hafði þó alltaf trú á því að Valsliðið gæti komið til baka og snúið dæminu sér í vil. "Mér fannst þetta vera möguleiki. Á síðustu 15-20 mínútur skutum við mikið í stangirnar, náum ekki fráköstum og þetta féll ekki með okkur," sagði Alfreð og bætti við: "Það kom virkilegur í kraftur í okkur síðustu 20 mínúturnar og við gerðum allt til að komast aftur inn í leikinn. Og það mátti litlu muna," sagði Alfreð að lokum.
Íslenski handboltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Hlaut heilahristing og er enn með hausverk en aganefnd gaf grænt ljós Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun Fótbolti Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira