Sparaðu þér tíma eftir ræktina Ritstjórn skrifar 28. janúar 2016 12:00
Nú er sá tími ársins þar sem margir byrja í ræktinni. Það er fátt betra en að skreppa í hádeginu, en þar sem ræktarferð getur verið ansi tímafrek með sturtuferð, hárblæstri og förðun þá tókum við saman nokkrar góðar vörur sem gætu sparað þér heilmikinn tíma í hádegisrækt. Moroccanoil Dry Shampoo Þetta þurrsjampó inniheldur hrísgrjónasterkju sem dregur í sig olíu svo hárið verður hreinna. Þurrkaðu hárið með hárblásara og spreyjaðu þurrsjampóinu í hárið. Nuddaðu því í rótina og hárið verður hreinna og ilmar dásamlega. Til bæði fyrir dökkt hár með smá dökkum lit og fyrir ljósara hár með örlitlum fjólubláum tón.Dior iconic Overcurl Waterproof maskari Það er algjört must að vera með vatnsheldan maskara, bæði ef þú ætlar ekki að enda með pönduaugu eftir sveittan tíma og líka ef þú ætlar að spara þér tíma eftir ræktina. Þessi gefur góða sveigju og helst vel á.Bourjois Air Mat Foundation Þessi frábæri farði gefur góða þekju og inniheldur púður sem heldur húðinni mattri. Frábært til þess að hylja rauðar kinnar eftir æfingu og draga úr glans.Skyn Iceland The Antidote Cooling Lotion Frískandi og rakagefandi andlitskrem sem inniheldur myntu sem hefur kælandi áhrif á húðina. Algjör snilld á heitar kinnar eftir góða æfingu.
Glamour Fegurð Mest lesið Emma Watson í hinum fullkomna Dior kjól Glamour Flottasta hárteymi heims á leið til landsins Glamour Tískan á Secret Solstice: Sólgleraugu og regnjakkar Glamour Cara vinnur að tónlist með Nile Rodgers Glamour Nýtt förðunartrend frá Suður-Kóreu slær í gegn Glamour Khloe Kardashian sló heimsmet með gallabuxunum sínum Glamour Miranda Kerr gifti sig í Dior Glamour Oprah Winfrey, Reese Witherspoon og Mindy Kaling saman á hvíta tjaldið Glamour Svona verður hárið þitt eins og á Olsen tvíburunum Glamour Clooney afhjúpar kyn tvíburanna Glamour