Nýjar rannsóknir veita ný svör um landnámið 11. janúar 2016 10:45
Ráðgátur landnámsins og upphaf Íslandssögunnar er viðfangsefni Landnemanna, nýrrar íslenskrar þáttaraðar sem hefur göngu sína á Stöð 2 í kvöld. Dagskrárgerðin er í höndum Kristjáns Más Unnarssonar en rætt var við hann í þættinum Ísland í bítið á Bylgjunni í morgun um efni þáttanna. Nýjar vísindarannsóknir á ólíkum sviðum hafa verið að leiða fram nýja vitneskju um hvenær byggð hófst á Íslandi og hvernig hún þróaðist. Um leið er deilt um hvernig túlka beri nýlegar aldursgreiningar, sem virðast gefa til kynna að fólk hafi verið komið til Íslands hundrað til tvöhundruð árum fyrr en áður var talið. Í þáttunum verður rætt við hátt í eitthundrað manns, þar á meðal vísindamenn á ólíkum sviðum vísinda- og fræðigreina, sem fjalla um þetta efni. Sérfræðingar á ólíkum sviðum velta upp spennandi spurningum um rætur Íslendinga og hverjir fundu Ísland. Eins og þeim hvort grískir sæfarar hafi fyrstir komið til landsins og gefið því nafnið Thule, hvort rómverskur herleiðangur hafi strandað skipi sínu hér, hvort kristin byggð manna frá Bretlandseyjum hafi verið komin á undan norrænu víkingunum og hvort Ingólfur Arnarson hafi í raun verið til.Fyrsti þáttur Landnemanna ber undirtitilinn Ráðgáturnar og er á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 20.40 í kvöld.
Menning Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Myndaveisla: Ærandi pollagallastemming í Eyjum Lífið Hvetur fólk til að taka sjálfu með „þessu glæsiklofi“ Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira