Flaggskip Skoda frumsýnt Finnur Thorlacius skrifar 15. janúar 2016 14:41 Nýr Skoda Superb.
Nýr Skoda Superb verður frumsýndur á stórsýningu Heklu laugardaginn 16. janúar frá 12.00 til 16.00. Um er að ræða þriðju kynslóð þessa vinsæla bíls sem kemur úr smiðju skemmtilegu Skoda fjölskyldunnar. Þetta er rúmgóður og fágaður fjölskyldubíll sem er fullkominn í leik og störf og hans hefur verið beðið með ofvæni. „Nýr Superb er bæði stærri og rúmbetri en áður og nýja hönnunin er mjög falleg og stílhrein. Við höfum fengið margar fyrirspurnir um bílinn og það er mikill spenningur fyrir frumsýningunni,“ segir Gestur Benediktsson, sölustjóri Skoda, sem býst við fjörugum degi. „Við ákváðum að frumsýna hann sama dag og stórsýning HEKLU stendur yfir svo það verður heljarinnar veisla..“ Nýr Superb býr yfir mörgum framsæknum öryggiskerfum. Af öryggisbúnaði má nefna árekstrarvara og rafræna stöðugleikastýringu en Superb er á lista Euro NCAP yfir öruggustu fjölskyldubílana. Einnig er hægt að fá akstursaðstoðarkerfi á borð við fjarlægðartengdan hraðastilli og blindsvæðagreini. Upplýsinga- og afþreyingakerfi í Skoda Superb er til fyrirmyndar og þar ber helst að nefna samskiptatækið SmartLink. Með SmartLink er hægt að spegla skjá snjallsímans á skjá upplýsinga- og afþreyingarkerfisins. Einnig er hægt að nota spjaldtölvu til að stýra völdum aðgerðum í upplýsinga- og afþreyingarkerfinu með nýja Command smáforritinu. Skoda Superb kemur með nýrri kynslóð véla og hægt er að velja á milli bensín- og dísilvéla. Hekla hvetur fólk til að kynna sér Skoda Superb næstkomandi laugardag, 16. janúar, milli kl. 12.00 og 16.00 í sýningarsal Skoda að Laugavegi 170-174.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent