Nýr Hyundai Ioniq er tvinnbíl, tengiltvinnbíll og rafmagnsbíll Finnur Thorlacius skrifar 8. janúar 2016 09:43 Hyundai Ioniq. Autoblog
Frá Hyundai berast nú sífellt meiri upplýsingar og myndir af nýjustu afurð fyrirtækisins, Ioniq. Þessi nýi bíll mun bjóðast ímeð þremur mismunandi drifrásum, þ.e. sem tvinnbíll (Hybrid), tengiltvinnbíll (Plug-In-Hybrid) og sem rafmagnsbíll. Svo virðist sem í bili sé mest áhersla Hyundai lögð á tengitvinnbílinn og mestar upplýsingar gefnar upp um hann. Hann verður með 1,6 lítra bensínvél og 43 hestafla rafmótorum og rafhlöðurnar eru lithium-ion polymer gerðar og staðsettar eins neðarlega í bílnum og kostur er til að auka aksturshæfni bílsins. Bíllinn kemur með tveggja kúplinga og sex gíra sjálfskiptingu. Ioniq á að keppa við bíla eins og Toyota Prius, Nissan Leaf og Chevrolet Volt og Bolt og í stað þess að hann tvær eða þrjár gerðir bíla með mismunandi aflrás má fá þær allar í þessum eina bíl. Því verður hann ekki í boði eingöngu með brunavél. Hyundai ætlar að frumsýna bílinn í S-Kóreu seinna í þessum mánuði og hann verður einnig sýndur á bílasýningunni í Genf í mars.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent