Hér nýtur tónlistin sín afar vel Magnús Guðmundsson skrifar 23. júlí 2015 10:30 Ari Þór Vilhjálmsson og hundurinn Dídí, Steinunn Birna Ragnarsdóttir, Þóra Einarsdóttir, Atte Kilpeläinen og Sigurgeir Agnarsson æfðu stíft í vikunni fyrir Reykholtshátíð. Visir/Valli
Reykholtshátíð er með eldri og virtari tónlistarhátíðum landsins þrátt fyrir að eiga sér nú ekki lengri sögu en frá 1997. Að vanda er hátíðin haldin síðustu helgina í júlí að Reykholti í Borgarfirði og er dagskráin fjölbreytt og spennandi fyrir alla unnendur klassískrar tónlistar. Sigurgeir Agnarsson er listrænn stjórnandi Skálholtshátíðar og hefur sinnt því hlutverki frá 2013 og hann segir að það sé svo sannarlega boðið upp á breiða dagskrá í ár. „Við byrjum á föstudagskvöldinu með tónleikum Karlakórsins Heimis úr Skagafirði sem hefur lengi verið í fararbroddi íslenskra karlakóra og því tilhlökkunarefni að bjóða þá velkomna á Reykholtshátíð. Þóra Einarsdóttir sópran og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari halda síðdegistónleika á laugardeginum undir yfirskriftinni Báran. Á laugardagskvöldið verður lágfiðlan í aðalhlutverki en sérstakur gestur hátíðarinnar í ár er finnski lágfiðluleikarinn Atte Kilpeläinen. Lokatónleikarnir á sunnudagskvöldið verða svo fjölbreyttir að vanda og um að gera fyrir áhugasama að kynna sér dagskrána nánar á heimasíðu hátíðarinnar, reykholtshatid.is. Málið er að það er alltaf dálítið sérstakt að upplifa alla þessa tónlist í þessu fallega umhverfi. Þessi upplifun er líka aðeins önnur fyrir okkur tónlistarfólkið, ólík svona þessum hefðbundnu tónleikum á sunnudagskvöldum í Reykjavík, enda tökum við svona vikuna í þetta og höfum gaman af. Að auki erum við að spila í einu af betur hljómandi húsum landsins þannig að öll þessi fjölbreytta tónlist ætti að njóta sín vel.“ Skálholtshátíð hefur alla tíð verið vel sótt og Sigurgeir segir að tónleikagestir komi víða að. „Það er alltaf talsvert um að heimafólk í Borgarfirði komi og svo er líka heilmikil sumarhúsabyggð á svæðinu. Að auki þá er þetta nú ekki nema ríflega klukkustundar akstur þannig að það er mikið um að fólk taki bíltúr, kaffi og tónleika um þessa helgi.“ Sigurgeir bendir einnig á að á laugardaginn sé tilvalið að skella sér fyrst á fróðlegan og skemmtilegan fyrirlestur kl. 13 á vegum Snorrastofu hjá Páli Berþórssyni. En þar mun Páll skoða betur bakgrunn Vínlandssagnanna. „Eftir fyrirlesturinn er gott að fara í smá kaffihlé og skella sér svo á tónleika klukkan fjögur og jafnvel aftur um kvöldið.“
Tónlist Mest lesið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Terry Reid látinn Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira