Kveðjudans Magnús Guðmundsson skrifar 22. maí 2015 14:30 Roots Unrooted Mirte Bogaert og Juliette Louste.
Í júní og júlí verður Tjarnarbíó lokað vegna framkvæmda, þar sem efri hluti áhorfendastúkunnar verður endurgerður og ný, betri sæti sett í staðinn. Í nýja salnum verða 30 fleiri sæti og sjónlína verður leiðrétt. Einnig verður ýmis tækjakostur hússins endurnýjaður. Í tilefni af þessum breytingum hafa Juliette Louste og Mirte Bogaert samið Roots Unrooted, dansverk til heiðurs gömlu stúkunni, sem þær munu frumsýna í kvöld kl. 20.Áhorfendur á sýningunni munu fá að sjá salinn á hátt sem þeir hafa aldrei séð áður, en þær bjóða áhorfendum að hverfa á vit minninganna sem salurinn býr yfir, með leikgleði og dans að leiðarljósi, en Roots Unrooted er frumlegt dansverk sem þurrkar út hefðbundin mörk milli áhorfenda og flytjenda. Mirte Bogaert og Juliette Louste leita sífellt að nýjum heimkynnum, til að dansa, hittast, til að fagna tíma, rými, hreyfingu og hljómi. Þær eiga sér gerólíka sögu, en samt svo líka. Leið þeirra um tíma og rúm skapaði í þeim sams konar hugarfar, um listina og um lífið. Sama kvöld, að sýningu lokinni, heldur Kári Viðarsson tónleika á Tjarnarbarnum. Hann hefur notið mikilla vinsælda með flutning sinn, sem er einhvers staðar á milli uppistands og tónleika.
Menning Mest lesið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Walking Dead-leikkona látin Lífið Húsgögn úr afgöngum og fiskar í gosbrunninum Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Ástralskur hommasirkus skemmtir börnum og fullorðnum í Tjarnarbíói Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira