Hjarta sýningarinnar er í söngljóðum Jónasar Árnasonar Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 30. apríl 2015 13:30 iKarl, Magnús, Baldur Trausti, Edda og Páll krydda söguna með góðri tónlist. „
Við segjum söguna af heimsókn ævintýramannsins Jörgens Jörgensens til Íslands 1809 á gamansaman hátt. Hjarta sýningarinnar eru þó söngljóð Jónasar Árnasonar um hundadagakonunginn og eins er mikið myndefni frá þessum tíma,“ segir Edda Þórarinsdóttir leikkona um kabarettinn Leitin að Jörundi sem hún er höfundur að. Segir líka brot flutt úr nokkrum lögum sem tengja söguna nútímanum. Kabarettinn var sýndur sex sinnum við góðar undirtektir síðasta haust en vegna anna flytjenda varð hlé á sýningum. Nú hefjast þær aftur og eru fyrirhugaðar sunnudagana 3., 10. og 17. maí klukkan 20. Flytjendur kabarettsins eru hljómsveitin Fjögur á palli; Edda Þórarinsdóttir, Karl Olgeirsson, Magnús Pálsson og Páll Einarsson, ásamt leikaranum Baldri Trausta Hreinssyni. „Við bjóðum upp á kaffihúsastemningu með dillandi tónlist og góðu gríni,“ segir Edda. Jörgen Jörgensen var rekinn úr skóla 14 ára gamall, yfirgaf Danmörku og fór til Bretlands. Árið 1809 sigldi hann með sápuframleiðandanum Samuel Phelps til Íslands að kaupa lýsi og tólg. Hann gerði byltingu á Íslandi gegn dönskum yfirvöldum sem höfðu meinað Íslendingum að versla við útlendinga, tók sér konungsvald og ríkti yfir Íslandi í tvo mánuði.
Menning Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Loni Anderson er látin Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Calvin Harris orðinn faðir Lífið Terry Reid látinn Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira