Hæ! Tröllum á meðan við tórum og Ave María 21. mars 2015 14:00 Graduale Nobili Í hinu undurfagra verki Ave Maria eftir Gustav Holst munu kórfélagar umlykja áheyrendur.
Graduale Nobili, sem skipaður er líflegum stúlkum og stjórnað er af Jóni Stefánssyni organista, verður með fjölbreytta dagskrá á tónleikum sínum í Langholtskirkju á morgun, sunnudaginn 22. mars, klukkan 17. Síðasta ár hélt kórinn tónleika sem vöktu mikla athygli og gerðu lukku. Þá samanstóð efnisskráin af karlakórslögum. Dömurnar hafa ekki sagt skilið við þau því nokkur þessara laga eru með á dagskránni, lög eins og Hæ! Tröllum á meðan við tórum, Einu sinni svanur fagur og Skín við sólu Skagafjörður. Á seinni hluta tónleikanna verða meðal annars sex verk tileinkuð Maríu guðsmóður en boðunardagur Maríu er næsta sunnudag. Má þar nefna Maríuljóð eftir Hildigunni Rúnarsdóttur, Maríukvæði eftir Atla Heimi Sveinsson, Salve Regina eftir Kocsár Miklós og hið undurfagra Ave Maria eftir Gustav Holst þar sem kórfélagar umlykja áheyrendur. Einnig verður frumflutt Magnificat sem breska tónskáldið Christopher Field samdi fyrir kórinn. - gun
Menning Mest lesið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið „Ég mun lifa á þessum degi út ævina“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Terry Reid látinn Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Loni Anderson er látin Lífið Áferðarfallegir en óeftirminnilegir fjórmenningar Gagnrýni Samsæri tóbaksframleiðenda í reykfylltum bakherbergjum Lífið Fleiri fréttir „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira