Bjartsýnar konur ætla að syngja inn vorið á morgun Gunnþóra Gunnardóttir skrifar 13. mars 2015 13:30 Þessi mynd var tekin á síðustu jólatónleikum. Lilja er við píanóið í rauðum kjól.
Þrátt fyrir byl og ófærð þessa dagana heldur kvennakórinn Hekla sína árlegu vortónleika í Laugarneskirkju á morgun klukkan 16. „Þetta lýsir konunum í kórnum vel, þær eru svo bjartsýnar og kraftmiklar og það er svo mikil gleði í hópnum,“ segir stjórnandinn Lilja Eggertsdóttir. Á efnisskránni hjá Heklunum er bæði innlend og erlend tónlist, að sögn Lilju. „Þemað er stríðsáratónlist, óperukórar úr Sardasfurstynjunni, lög úr óperettum og svo blanda af gömlum og nýjum dægurflugum, að ógleymdum nokkrum þjóðlögum, írskum, sænskum og enskum,“ lýsir hún. Lilja leikur sjálf á píanó og auk hennar spila Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir fiðluleikari og Þorgrímur Jónsson kontrabassaleikari. Aðgangseyrir á tónleikana er 2.000 krónur, bæði við innganginn og í forsölu hjá kórkonum (heklurnar@gmail.com) en frítt er fyrir börn yngri en 16 ára. Fólk er beðið að athuga að ekki er tekið við greiðslukortum.
Menning Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Terry Reid látinn Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum Menning Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira