Þetta er ekki stimpilklukkustarf Gunnþóra Gunnardsóttir skrifar 20. febrúar 2015 13:30 „Ég verð í stöðugu samtali við aðra í stjórn sveitarinnar,“ segir Daníel um nýja starfið. Vísir/Valli
Daníel Bjarnason tónlistarmaður er að koma upp úr neðanjarðarlest í London þegar í hann næst í síma. Segir um vikustopp að ræða í heimsborginni vegna tónlistar sem hann sé að semja við dansverk fyrir hóp þar. Það leggst vel í hann að vera orðinn staðarlistamaður Sinfóníunnar á Íslandi. „Ég hlakka bara til. Þetta rammar inn samstarf mitt við sveitina nú þegar, sem stjórnandi og tónskáld. Nú bætist við að hafa áhrif á verkefnavalið og stýra tónskáldastofu.“ Það síðarnefnda segir hann snúast um að gera meira fyrir ung tónskáld. Daníel mun meðal annars stjórna umfangsmikilli tónleikauppfærslu óperunnar Peter Grimes eftir Benjamin Britten sem verður frumflutt á Íslandi 22. maí á Listahátíð í Reykjavík og einnig verða með sveitinni í tónleikferð um landið í október. Sinfónían og Cincinnati Symphony Orchestra hafa pantað nýtt verk af Daníel sem frumflutt verður í Bandaríkjunum í næsta mánuði en hér verður það leikið í nóvember undir stjórn hans. Spurningu um hvort nýja embættið hefti frama hans á erlendri grund svarar Daníel neitandi. „Þetta er ekki stimpilklukkustarf heldur verkefnabundið. Ég verð í stöðugu samtali við aðra í stjórn sveitarinnar, kem að fræðslu og einstaka viðburðum, fyrir utan að skrifa tónlist.“
Listahátíð í Reykjavík Menning Mest lesið Justin Timberlake með Lyme-sjúkdóm Lífið Útskúfaður úr Hollywood vegna kossareglunnar Lífið Robert Wilson er látinn Lífið Gary Busey játar kynferðisbrot Lífið Þrettán bestu lög Ozzy Osbourne Lífið Mannblendnir refir slá í gegn á Snæfellsnesi Lífið Nýja Kardashian-gríman breytir Hopkins aftur í Lecter Lífið Dularfullur veðurbreytir Jakobs Frímanns og maðurinn á bak við hann Lífið Einar og Milla eignuðust dreng Lífið Uppljóstrar um síðustu skilaboðin sem hann fékk frá Ozzy Lífið Fleiri fréttir Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira