Mamman og börnin sýna saman Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 5. febrúar 2015 14:30 „Þetta er fyrsta sýning okkar saman,“ segir Kristín sem hér er með Guðrúnu og Matthíasi en Arngrímur var stunginn af til útlanda. Vísir/Stefán „
Þetta er fyrsta sýning okkar saman og var bara til gamans gerð,“ segir Kristín Arngrímsdóttir, myndlistarkona og rithöfundur, um listsýningu sína og barna sinna þriggja, Guðrúnar Steingrímsdóttur og Arngríms og Matthíasar Rúnars Sigurðssona. Sýningin er í Galleríi Vest á Hagamel 67 og verður opin að minnsta kosti út næstu viku. Þar eru bæði teikningar og málverk eftir fjölskylduna. Kristín á nokkrar einkasýningar að baki og margar samsýningar með öðrum. Hún hefur bæði skrifað og myndskreytt barnabækur, meðal annars bækurnar um Arngrím apaskott og Meistaraköttinn Matthías. Nú er hún með krítarteikningar. Greinilegt er að listin gengur í erfðir. Guðrún er að sýna í fyrsta sinn en bræðurnir hafa alloft sýnt saman, bæði meðan þeir voru í Listaháskólanum og eftir að þeir útskrifuðust. Arngrímur gaf nýlega út bókina Duldýrasafnið og myndir hans á sýningunni eru úr því safni.
Menning Mest lesið Walking Dead-leikkona látin Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Tók sterkan kjúklingabita í stað þess að styggja Íslendinga Lífið Kveður föður sinn með tilvitnun í Hunter S. Thompson Lífið Egill, Valgeir og Sigurður Bjóla saman á sviði í fyrsta sinn síðan 1976 Lífið samstarf Brjánn hefur göngu sína í haust: „Erum við að falla úr efstu deild í Norður-Kóreu?“ Lífið Rekur sögu sósunnar sem allir elska: „Pítusósan fæddist í Asparfellinu“ Lífið Marín Manda og Hannes Frímann trúlofuð Lífið Terry Reid látinn Lífið „Mig langar ekki lengur að deyja“ Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira