Hakkaði sig inn í tölvur poppara 23. janúar 2015 12:00 Madonna er þakklát þeim sem gáfu lögreglunni upplýsingar sem leiddu til handtökunnar. Vísir/Getty
Ísraelskur maður hefur verið handtekinn grunaður um að hafa hakkað sig inn í tölvur poppstjarna, þar á meðal Madonnu, og selt óútgefin lög á netinu. Ísraelska lögreglan sagði að maðurinn væri grunaður um að hafa stolið verkum frá þó nokkrum alþjóðlegum stjörnum. Madonna segist vera „óendanlega þakklát“ þeim sem aðstoðuðu við handtöku hakkarans og lýsti reynslu sinni sem hræðilegri og særandi. „Ég vil þakka aðdáendum mínum kærlega sem hafa komi fram með áreiðanlegar upplýsingar og halda áfram að gera það varðandi leka á tónlist. Eins og allir ríkisborgarar, hef ég rétt á einkalífi,“ sagði Madonna á Facebook. Hún ákvað að flýta útgáfu sex nýrra laga í síðasta mánuði eftir prufuupptökur og ókláruð lög af plötu hennar Rebel Heart fóru á netið. Stutt er síðan Björk Guðmundsdóttir ákvað að flýta útgáfu nýjustu plötu sinnar, Vulnicura, eftir að henni var lekið á netið . Í framhaldinu skaust platan á toppinn á sölulistum iTunes úti um allan heim.
Tónlist Mest lesið Margbraut á sér ökklann á Snæfellsjökli Lífið Verðmiðinn hækkar á höll Antons Lífið Langar að berjast við OnlyFans-stelpur Lífið Skúli og Gríma fengu sér hund Lífið Biðin langa: Rúmt ár í herlegheitin Leikjavísir Söngkonan Jill Sobule lést í húsbruna Lífið Segist hafa gert merka uppgötvun nú þegar hann „nálgast endalok lífs“ síns Lífið Menningarlegt heimili með stórbrotnu útsýni Lífið Batinn á vefjagigt kom úr óvæntri átt Lífið samstarf Aldrei verið eins einfalt að bóka tíma Lífið samstarf Fleiri fréttir Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira