Verk um misskilning og vandræðagang Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. október 2015 09:45 „Við kunnum best að tjá tilfinningar okkar með hreyfingum. Okkur finnst það auðveldasta tjáningarformið,“ segir Unnur Elísabet sem hér er til hægri og Berglind til vinstri. Vísir/GVA „
Þetta er glænýtt dansverk. Við Berglind erum búnar að vinna að því í hálft ár og getum varla beðið eftir að sýna afraksturinn,“ segir Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, dansari og danshöfundur, um verkið This conversation is missing a point – eða Þetta samtal vantar punkt, sem verður frumsýnt í Tjarnarbíói í kvöld klukkan 20.30. „This conversation is missing a point er kómískt dansverk, ekkert drama heldur létt og skemmtilegt, enda erum við Berglind báðar algerir trúðar í okkur,“ segir Unnur Elísabet og tekur fram að bullmál sé notað í sýningunni og því henti hún jafn vel fyrir útlendinga og Íslendinga.„This conversation is missing a point er kómískt dansverk, ekkert drama heldur létt og skemmtilegt, enda erum við Berglind báðar algerir trúðar í okkur,“ segir Unnur Elísabet.„Það ættu allir að tengja við þetta verk, að minnsta kosti þeir sem hafa lent í því að eiga erfitt með að tjá sig með orðum. Oft eru stór málefni sem erfitt er að tala um og koma frá sér, þá fer fólk að tafsa og bulla þannig að allt misskilst. Þetta er svolítið þannig. En á sama tíma er mikil vinna lögð í smáatriði í dansinum.“ Unnur Elísabet telur víst að fólk skilji það í hreyfingum þeirra Berglindar sem þær vilja segja með orðum. „Við kunnum best að tjá tilfinningar okkar með hreyfingum. Okkur finnst það auðveldasta tjáningarformið. Við erum búnar að fá nokkra leikara á æfingar og þeir hafa hlegið þvílíkt og skemmt sér. Þetta verk er um fólk af báðum kynjum sem til dæmis á erfitt með að halda ræður, byrjar að stama í míkrafóninn og allt fer í rugl, þannig að þetta er bara algerlega „missing a point“.“ Þær Unnur Elísabet og Berglind hafa báðar verið í Íslenska dansflokknum. Nú eru þær bæði sjálfstætt starfandi og að vinna hjá öðrum, Unnur Elísabet er til dæmis í Borgarleikhúsinu í Billy Elliot og Berglind er að kenna. Báðar verða þær svo líka í Mamma mía.Aðrar sýningar á This conversation is missing a point eru 11. og 17. nóvember. Aðeins er um þessar þrjár sýningar að ræða.
Menning Mest lesið „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Hvað veistu um… One Direction? Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira