Emil leikmaður ársins að mati leikmannana | Höskuldur efnilegastur Kristinn Páll Teitsson skrifar 4. október 2015 12:30 Emil með viðurkenningarskjöld og Icelandair-hornið í gær. Mynd/KSÍ
Leikmenn Pepsi-deildarinnar völdu Emil Pálsson, miðjumann FH, sem besta leikmann Pepsi-deildarinnar en þetta var tilkynnt í gær. Hinn 22 ára gamli Emil lék stórt hlutverk í liði FH sem hampaði Íslandsmeistaratitlinum. Emil hóf tímabilið á láni hjá Fjölni á lánssamningi og lék frábærlega í herbúðum Grafarvogsliðsins en hann var kallaður aftur í lið FH þann 25. júlí síðastliðinn eftir meiðsli Sam Hewson og var honum hent beint inn í liðið. Emil lék stórt hlutverk í FH-liðinu það sem eftir lifði sumars en hann lék alls 12 leiki fyrir FH í Pepsi-deildinni í sumar, þar á meðal alla leikina þegar FH vann sjö leiki í röð og átta af níu leikjum. Skoraði hann í þeim fjögur mörk en hann skoraði oft mikilvæg mörk fyrir FH í sumar.Höskuldur með verðlaunin í gær.Mynd/KSÍÞá var Höskuldur Gunnlaugsson, leikmaður Breiðabliks, valinn efnilegasti leikmaðurinn í Pepsi-deildinni af leikmönnum deildarinnar. Höskuldur sem er fæddur árið 1994 kom upp úr unglingastarfi félagsins en hann lék 20 leiki í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði í þeim 6 mörk. Missti hann aðeins af tveimur leikjum vegna veikinda í sumar en Höskuldur greindist með hettusótt í júní. Þá var tilkynnt í gær að 1107 áhorfendur mættu að meðaltali á hvern leik sem er besta meðaltalsaðsókn frá árinu 2011. Flestir mættu að meðaltali á leiki FH, 1925 en flestir mættu á leik FH og Breiðabliks í 9. umferð, alls 2843. Flestir áhorfendur mættu á fyrstu umferð Pepsi-deildar karla í ár en 10.305 mættu á leikina í fyrstu umferð á meðan aðeins 3131 mættu á lokaumferðina sem fór fram í gær.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Króatía 29-30 | Aftur súrt tap gegn Króötunum hans Dags Handbolti Líkur Íslands á verðlaunum hafa snaraukist Handbolti Botna ekkert í Snorra: „Við erum teknir í bólinu“ Handbolti „Hann er sonur minn“ Fótbolti „Tveggja ára barn að labba við sundlaugarbakkann og enginn gerði neitt“ Handbolti „Ég er að fara aftur til Svíþjóðar“ Handbolti Össur gagnrýndi fýlulegar og miskunnarlausar spurningar Loga Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Króatíu: Basl á Bóndadaginn Handbolti „Þurfum við ekki að fá fleiri varða bolta?“ Handbolti Aron Kristjáns tapaði líka með minnsta mun Handbolti Fleiri fréttir Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Jón Guðni aðstoðar Ólaf Inga Blikarnir eru búnir að missa 34 mörk og 25 stoðsendingar Sjá meira