Birgir Leifur missti af niðurskurðinum í Kasakstan Kristinn Páll Teitsson skrifar 11. september 2015 12:45 Birgir Leifur náði sér ekki á strik í dag. Vísir/Daníel
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, náði sér ekki á strik á öðrum degi Kasakstan Open mótsins sem er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Birgir Leifur lék á fimm höggum yfir pari á öðrum degi og missti fyrir vikið af niðurskurðinum. Birgir Leifur lék stöðugt golf í gær, fékk aðeins tvo skolla og fjóra fugla og deildi 24. sæti eftir fyrsta keppnisdag. Á fyrri níu holum dagsins krækti hann í einn fugl og tvo skolla og kom inn á einu höggi pari en hann náði aldrei flugi í dag. Lék hann seinni níu holur dagsins á fjórum höggum yfir pari en hann fékk fjóra skolla og fimm pör á seinni níu holunum og lauk leik á fimm höggum yfir pari á deginum og alls þremur höggum yfir pari en til þess að komast í gegn um niðurskurðinn þurftu kylfingarnir að leika á pari.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Risa sigur fyrir Leeds United Enski boltinn Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira