Hver er þessi fuccboi? Gunnhildur Jónsdóttir skrifar 9. september 2015 12:15 Margir telja að Justin Bieber sé forsprakki fuccboi-tískunnar en hér má sjá hann í hvítum leðurjakka með göddum, klofsíðum hvítum buxum og uppháum leðurstrigaskóm.
Hvort sem þú hefur heyrt um það eða ekki þá er fuccboi-tískan komin til Íslands og það er enginn sem getur stöðvað það. Margir hafa velt því fyrir sér hver þessi fuccboi sé sem allir eru að tala um. Af hverju er hann svona umdeildur? Hvaðan kemur hann? Fréttablaðið spurði nokkra sérfræðinga og hvort þessi tíska sem virðist vera að taka yfir efstu bekki grunnskóla og menntaskóla landsins sé góðs viti og hvort hún sé komin til að vera. Margir líkja fuccboi-num við hnakkann sem var vinsæll fyrir um það bil fimm árum. Það helsta sem þú þarft að vita um fuccboi er að hann er ungur drengur á aldrinum 15 til 20 ára, lítur upp til poppsöngvara á borð við Justin Bieber og rappara eins og Kanye West. Þeir taka trendin alla leið, stundum aðeins of langt. Það er mikið af leðri, rennilásum, áberandi litum, síðum bolum, þröngum buxum og góð derhúfa er toppurinn á ísjakanum. Fuccboi-tískan er ekki séríslenskt fyrirbæri heldur þekkist hún um allan heim. Hún er til í fleiri útfærslum í öðrum löndum. Hér á landi hafa þó ungu strákarnir þróað sína eigin týpu sem getur ekki verið neitt nema góðs viti. Eitt er víst, fuccboi-inn er ekki á förum og því gæti verið kominn tími til að Íslendingar fari að sætta sig við hann.Sindri Snær JenssoninstagramSindri Snær Jensson segist alls ekki fýla fuccboi-stýlinn en fólk megi þó vera í því sem það finnst flott. „Fuccboi tískan þróaðist einhvernvegin upp úr pop kúltúrnum. Tónlistarmenn byrjuðu að representa þetta útlit. Það hafa margir séð þessa tísku en það er erfitt að skilgreina hana. Leður buxur, síðir bolir með rennilásum á hliðunum, leðurbót á hnéin og margt sem ég er ekkert sérstaklega hrifinn af. Það eru margir sem taka þetta allt of langt og eru of ýktir í þessu fuccboi looki en það eru líka margir sem gera þetta fínt. Það eru til dæmis margir fótboltamenn sem innleiða þetta í sinn eigin stíl eins og til dæmis að vera í dýrum strigaskóm en eru samt ekki svona ógeðslega ýktir. Það þarf að fara fínt í þetta. Rennilásar á stuttermabolum og gervileður ermar á ekki að vera til. Ég held að standard útliðið hjá ýktum fuccboi sé rauðir leður strigaskór, svartar klofsíðar en samt þröngar buxur með rennilásum, rosalega síður bolur eða jafnvel tveir bolir þar sem annar þeirra nær niðurfyrir hinn og svo skyrtan bundin um mittið. Fólk má samt auðvitað klæðast því sem það vill sérstaklega ef því finnst það flott en ég hef mínar skoðanir.“Ólafur Kjaran ÁrnasonAldís MjöllÓlafur Kjaran Árnason hefur farið mikinn á Twitter varðandi fuccbois. Hann er ekki fuccboi sjálfur en er þó mikill aðdáandi. "Justin Bieber er fyrirliðinn. Hann er allaf einu skrefi á undan og með allt 'etta fucboidæmi á lási. Í grunninn er 'etta ekkert flókið: ef þú klæðir þig eins og fucboi, hugsar eins og fucboi og vilt bara gera einhverja fucboihluti - þá ertu sennilega fucboi. En hugtakið er mjðg loðið og lifandi, sem gerir þetta svolítið erfitt fyrir fólkið á Árnastofnun. Í grófum dráttum erum við að tala um síða skyrtu eða bol og níðþröngar, klofsíðar buxur, helst smá rifnar eða með einhverju leðri eða rennilásum. Eitraðir skór og kannski veik derra eða keðja. Hinn íslenski fucboi hlustar líklega á Steinar, Gísla Pálma og Sturlu Atlas og hann biður ekki um mikið: dæmigerður fucboi vill bara lifa í núinu, vera með pening, gott look, nýjan síma og manneskju til að elska. Fucboi var kannski neikvætt hlaðið orð í upphafi, en núna er þetta bara hugtak yfir það sem er að gerast í efri bekkjum grunnskóla og menntaskólum út um allt land. Maður sér þetta alls staðar - og það er ekkert að þessu, þetta er mjög ferskt."Jason Derulo klæðist fuccboi-tískunni óspart.Allt sem þú þarft til þess að verða fuccboi:Uppháir leður strigaskór, helst hvítir eða alveg rauðir.Þröngar buxur með mjög sigið klof. Ekki skemmir fyrir ef þær eru rifnar, með rennilásum eða úr leðri.Síður bolur, alltof síður. Verður að vera með rennilás á hliðinni eða með leður ermum.Köflótt skyrta bundin um mittið tekið dressið á nýja hæð.Munstraður bomber jakki eða þröngur gallajakki er eitthvað sem enginn fuccboi getur lifað án.Flott derhúfa frá flottu merki með áberandi „logo“.
Justin Bieber á Íslandi Mest lesið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Lífið One Battle After Another bar sigur úr býtum Bíó og sjónvarp Súperstjarna tískuheimsins klæddi Laufeyju Tíska og hönnun Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið Fleiri fréttir Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Sjá meira