Aron Heiðar: Brá að fá svona stykki á mig Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. febrúar 2015 16:00 „
Ég stóð nú alveg upp aftur, en þetta var þó nokkuð högg,“ segir Aron Heiðar Guðmundsson, leikmaður Gróttu í 1. deild karla í handbolta, sem fékk rosalegt högg í leik gegn KR á föstudaginn. Þegar lítið var eftir af leiknum kom Aron Heiðar inn á í vesti og ætlaði að gefa boltann á Viggó Kristjánsson og hlaupa svo út af.Sjá einnig:Fékk rautt spjald fyrir gróft brot | Sjáðu rosalegt högg á Nesinu Hann komst ekki á leiðarenda því Bjarnfinnur Ragnar Þorkelsson, leikmaður KR, keyrði hann í gólfið með látum og uppskar rautt spjald eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan. „Ég fékk eitthvað helvítis sár á öxlina því ég lenti svo hrikalega illa. Svo fékk ég líka högg á hálsinn,“ segir Aron Heiðar við Vísi. „Þetta var alveg hörku högg og ég varð smá ringlaður, ég skal viðurkenna það. Mér brá aðallega svo mikið að fá þetta stykki á mig.“ Aron Heiðar er alveg heill eftir brotið. Hann hóf strax aftur æfingar með Gróttuliðinu sem er á hraðleið aftur í Olís-deildina. „Það er allt í góðu hjá mér og ég er klár í slaginn,“ segir hann. Málið var ekki tekið fyrir hjá aganefnd HSÍ í gær og fær Bjarnfinnur Ragnar því ekki leikbann. Brotið má sjá eftir 2 mínútur og 20 sekúndur í myndbandinu, en það er fengið af Youtube-síðu handboltavefsíðunnar FimmEinn.is.
Íslenski handboltinn Mest lesið Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Grealish í agabanni hjá Everton Enski boltinn Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Sjá meira