Hélt föður mínum með lifandi svip en ekki uppstilltum Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 22. nóvember 2014 12:30 þegar pabbi sat fyrir þá sagði Sigurjón sögur alveg stanslaust,“ segir skáldið.
Kristján Eldjárn, forseti Íslands, kom oftar en þrjátíu sinnum í vinnustofuna til Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara til að sitja fyrir sumarið 1978. Á morgun, sunnudag, klukkan 14, ætlar Þórarinn sonur hans að lesa upp frásagnir sem tengjast þessum heimsóknum. Upplesturinn fer fram í Listasafni Sigurjóns á Laugarnestanga. Kristján Styttan var unnin sumarið 1978. Mynd/ Gunnar G. Vigfússon„Þegar Sigurjón var að gera mynd af pabba, þá var það þannig að þegar pabbi sat fyrir þá sagði Sigurjón sögur alveg stanslaust,“ lýsir Þórarinn. „Pabbi fór að hafa gaman af þessu og alltaf þegar hann kom heim þá settist hann við rafmagnsritvélina og skrifaði upp frásagirnar, eins og Sigurjón sagði frá í fyrstu persónu. Úr þessu varð dálítil syrpa og ég ætla að velja úr henni nokkrar sögur til að lesa upp. Sigurjón sagði sögur af því sem hann hafði upplifað í æsku á Eyrarbakka, við nám í Kaupmannahöfn og af mönnum og málefnum. Með þessu hélt hann föður mínum með lifandi svip en ekki uppstilltum.“ Á undan lestri Þórarins ætlar Hlíf, dóttir Sigurjóns, að lesa valda kafla úr viðtali sem Erlingur Jónsson átti við föður hennar. Þar lýsir hann aðferðum Sigurjóns við að ná fram svipbrigðum fyrirsætna sinna.
Menning Mest lesið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið „Hún er í hljóðverinu núna“ Lífið Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Gagnrýni Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira