Þráhyggja fyrir leiðbeiningum Friðrika Benónýsdóttir skrifar 2. október 2014 15:00 Rakel McMahon. „Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum.“ Fréttablaðið/Stefán
Rauði þráðurinn, í bókstaflegri merkingu, í þessari sýningu er þráhyggja og sýningin er öll rauð,“ segir Rakel McMahon um sýninguna Red Direction sem hún opnar í Týsgalleríi í dag klukkan 17. „Ég hef mikið verið að sanka að mér leiðbeiningum af ýmsum toga síðustu árin; flugvélaleiðbeiningum frá ýmsum flugfélögum, klassískum IKEA-leiðbeiningum, sem hafa reynst mér erfiðar, og fleiru. Kveikjan að sýningunni er að ég hef átt mjög erfitt með að fara eftir svona leiðbeiningum, þannig að mín leið er að rýna í þessar skýringarmyndir sem í þeim eru, skoða listgildi þeirra og setja þær í nýtt samhengi.“ Titill sýningarinnar er Red Direction og auk teikninganna verður flutt tónverk eftir eiginmann Rakelar, Einar Tönsberg. „Hljóðverkið gefur tóninn fyrir sýninguna,“ segir Rakel. „Það er með texta og tvíræðni titils sýningarinnar er áberandi í honum.“ Rakel hefur unnið mikið með kynhlutverk og staðalímyndir í verkum sínum og segir að það þema sé undirliggjandi í þessari sýningu líka, þótt það sé ekki útgangspunkturinn.
Menning Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira