Grípandi laglínur vafðar spuna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 13. ágúst 2014 13:00 Þeir Luca Aaron, Fabian Willmann og Kristinn. Mynd/úr einkasafni „
Við flytjum eigin tónsmíðar. Þær eru dálítið tregafullar en tiltölulega einfaldar. Grípandi laglínur en vafðar spuna. Við erum allir búnir að vera í djassnámi og spinnum mikið kringum tónsmíðarnar.“ Þetta segir Kristinn Smári Kristinsson gítarleikari sem er í tríóinu Minua, ásamt þeim Luca Aaron, sem einnig leikur á gítar, og Fabian Willmann bassaklarinettuleikara. Þeir félagar eru nú á tónleikaferð um landið og koma fram víða. Kristinn er Reykvíkingur. Hann byrjaði að spila á selló fimm ára en skipti yfir í gítarinn um tólf ára aldurinn. Nú er hann nýútskrifaður úr tónlistarháskólanum í Basel í Sviss og hyggst færa sig yfir til Bern í enn frekara nám. Kristinn kveðst hafa kynnst þeim Fabian og Luca í Basel og hlakka til að sýna þeim landið sitt. Hægt er að fylgjast með ferðum Minua á Facebook-síðu tríósins sem og heimasíðunni www.minua.net. Tónleikar Minua eru á eftirtöldum stöðum: 14. Sjóræningjahúsið Patreksfirði kl. 21.00 15. Menningarhúsið Berg Dalvík 17. Akureyrarkirkja kl. 17.00 18. Sláturhúsið Egilsstöðum kl. 21.00 (Ormsteiti 2014) 19. Tónlistarmiðstöð Austurlands kl. 20.00 20. Pakkhúsið Höfn kl. 21.00 26. KEX Hostel kl. 20.30
Menning Mest lesið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið „Þetta er miklu stærra en fólk gerir sér grein fyrir“ Lífið Edda og Sverrir hrepptu Gullbjölluna Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira