Stórlið óperusöngvara í La traviata Friðrika Benónýsdóttir skrifar 7. ágúst 2014 19:00 Þóra Einarsdóttir og Garðar Þór Cortes fara með hlutverk elskendanna Violettu og Alfredos.
Óperukórinn og Söngskólinn í Reykjavík efna til óperutónleika í Hörpu 6. og 7. september næstkomandi en þá verður La traviata eftir Giuseppe Verdi flutt í konsertformi. La traviata er ein af þremur vinsælustu óperum sögunnar og er byggð á skáldsögunni um Kamelíufrúna eftir Alexandre Dumas yngri. Kamelíufrúin Marie Duplessis, sem heitir Violetta í óperunni, hafði verið ástkona Dumas. Verdi sá Kamelíufrúna leikna í París vorið 1852 og fáeinum mánuðum síðar hafði hann samið óperuna La traviata og var hún frumsýnd í Feneyjum 1853. Flytjendur La traviata nú eru Óperukórinn í Reykjavík ásamt einsöngvurum og sinfóníuhljómsveit undir stjórn Garðars Cortes. Í aðalhlutverkum eru Þóra Einarsdóttir sem er Kamelíufrúin Violetta, Garðar Thór Cortes er ástmaður hennar, Alfredo, Bergþór Pálsson er Giorgio Germont, faðir Alfredos, og Viðar Gunnarsson er Grenville, læknir Violettu. „La traviata er afar heillandi verk og við erum mjög stolt af að setja það upp með sannkölluðu stórliði óperusöngvara í Hörpu. Það er spennandi að setja La traviata upp í konsertformi og það er mikil tilhlökkun hjá tónlistarfólkinu. Tilefnið er ekki síst 40 ára afmælisgleðskapur Söngskólans í Reykjavík og Óperukórsins,“ segir Garðar Cortes, stjórnandi sýningarinnar.
Menning Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Hringar bendi til þess að Hadid og Cooper hafi gift sig Lífið Inga Sæland orðin eldri borgari: „Mér finnst ég alltaf vera bara tvítug“ Lífið Mikkel Hansen og Guðlaugur Victor í stuði hjá 66°Norður Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira