Gáfu börnum á BUGL spjaldtölvur Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2014 13:00 Við afhendingu Guðrún Bryndís Guðmundsdóttir, yfirlæknir BUGL, Dóra Elín Atladóttir, forstöðumaður Vildarbarna Icelandair, Linda Kristmundsdóttir, deildarstjóri göngudeildar BUGL,og Vilborg G. Guðnadóttir,deildarstjóri legudeildar BUGL.
Velunnari Vildarbarnasjóðs Icelandair sem ekki lætur nafns síns getið gaf sjóðnum nýlega nokkrar Apple-spjaldtölvur með ósk um að þær yrðu nýttar þar sem mikil þörf væri á. Í framhaldi af því var ákveðið að afhenda þær barna- og unglingageðdeildinni. Markmið sjóðsins Vildarbörn Icelandair er að gefa langveikum börnum, foreldrum þeirra og systkinum tækifæri til að fara í draumaferð sem þau ættu annars ekki kost á og alls hefur 431 fjölskylda notið stuðnings frá stofnun hans. Sjóðurinn er meðal annars fjármagnaður með beinu fjárframlagi Icelandair, frjálsum framlögum félaga í Saga Club Icelandair og með söfnun myntar um borð í flugvélum Icelandair. Starfsemin byggist á hugmyndum og starfi Peggy Helgason, eiginkonu Sigurðar Helgasonar, sem lengi var forstjóri Flugleiða og er nú stjórnarformaður Icelandair Group. Peggy hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti.
Menning Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira