Mikil tímamót í sögu Gauksins Gunnar Leó Pálsson skrifar 10. apríl 2014 15:30 Gaukurinn fjármagnar miklar breytingar með tónleikahátíð. Vísir/Vilhelm
Gaukurinn á langa og merkilega tónlistarsögu, og er einn af þeim fáu tónleikastöðum sem eftir eru í bænum, eftir að Nasa og Faktorý lokuðu,“ segir Starri Hauksson, einn eigenda Gauksins, en staðurinn mun taka miklum breytingum á næstu vikum. Til að fjármagna breytingarnar fer fram mikil tónlistarhátíð á Gauknum en hún hófst í gærkvöldi og lýkur á laugardagskvöldið. Fjöldi þekktra sveita kemur fram til að leggja Gauknum lið. „Það gefa yfir tuttugu hljómsveitir vinnu sína til þess að breyta staðnum til hins betra. Þetta væri ekki hægt ef ekki væri fyrir óeigingirni starfsmanna Gauksins og fleiri aðila sem leggja sitt af mörkum til að gera allt sem þarf að gera til að breyta staðnum,“ bætir Starri við. Kaleo, Brain Police, Reykjavíkurdætur og Kimono eru á meðal þeirra sveita sem koma fram á hátíðinni. Allur ágóðinn af tónleikahátíðinni rennur í breytingar á staðnum sem snúa að bættri þjónustu við listamenn sem koma fram; stærra sviði, ljósabúnaði, hljóðkerfi og splunkunýjum sal. „Við ætlum að færa sviðið til þannig að þegar gestir ganga inn sjá þeir sviðið strax og skapast þá rými fyrir fleiri sem vilja njóta tónleikanna,“ segir Starri. Ætlunin er að færa staðinn nær alþjóðastaðli með veitingaþjónustu fyrir listamenn sem koma fram, bættri kynningarþjónustu og litríkari tónleikaaðstöðu. Hver dagur tónleikahátíðarinnar verður helgaður ákveðinni gerð tónlistar. Gærkvöldið var helgað low-fi-trúbadoraívafi, í kvöld verður hiphop og rapp í eldlínunni, annað kvöld er áætlað þungarokkskvöld en laugardagurinn er fyrir lokapartí Gauksins þar sem boðið verður upp á blandaða tónlist. „Við stefnum á að fara í breytingar sem allra fyrst og vonumst til þess að ljúka þeim í maí,“ segir Starri um breytingarnar. Aðgangseyrir á alla hátíðina er aðeins 5.000 krónur en stakir miðar á hvert kvöld kosta 1.500 krónur. Thule er opinber styrktaraðili hátíðarinnar.Hér má nálgast frekari upplýsingar um tónlistarhátíðina á Gauknum.
Mest lesið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira