Halda upp á happaskip Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 28. mars 2014 13:00 Þau leggja sitt af mörkum til bjargar Skaftfellingi, hjónin Eggert Þór og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir. Fréttablaðið/Valli
Meðal frummælenda á málþingi um skipið Skaftfelling í félagsheimilinu Leikskálum í Vík á morgun eru hjónin Eggert Þór Bernharðsson og Þórunn Erlu Valdimarsdóttir. Eggert Þór ætlar að fjalla um menningarlegt gildi Skaftfellings og Þórunn að rifja upp magískt samstarf við ævisöguritun Sigrúnar Jónsdóttur kirkjulistakonu sem bjargaði Skaftfellingi frá tortímingu. „Ég var að ljúka við að skrifa erindið,“ segir Þórunn glaðlega þegar hún svarar í heimasímann. „Var að reyna að draga upp mynd af Sigrúnu, þeirri stórmerkilegu konu sem áttræð lyfti Skaftfellingi með annarri hendi. Hún gaf andvirði einnar fínustu íbúðar Reykjavíkur til að hægt væri að bjarga skipinu. Sigrún var ekki rík en hún var alvöru kona.“ Á málþinginu verður formlega endurvakið áhugamannafélag um Skaftfelling sem Sigrún stofnaði árið 2000 og hafði það markmið að koma Skaftfellingi heim til Víkur og byggja um hann safn. Fyrra markmiðinu náði Sigrún sjálf en nú er komið að öðrum að ná því seinna. Auk hjónanna Þórunnar og Eggerts eru Arnþór Helgason, Birna Hreiðarsdóttir, Björn G. Björnsson, Eiríkur Vilhelm Sigurðarson, Emil Þór Ragnarsson og Sigurður V. Sigurjónsson frummælendur á málþinginu og fundarstjóri er Ásgeir Magnússon sveitarstjóri. Í framhaldinu verður öllum gestum boðið að skoða Skaftfelling og Kötlusetur. Skaftfellingur kom til landsins 1918 til vöruflutninga. Allir íbúar Skaftafellssýslnanna tveggja voru eigendur því að tæpast fannst svo fátækt vinnuhjú að það legði ekki fram að minnsta kosti eina krónu í stofnsjóð til smíðinnar. Nú bíður hann þess að vera gerður upp sem minnisvarði um merka sögu. „Skaftfellingur er undir þaki en það hefur ekki verið neinn peningur til svo hægt sé að gera honum til góða. Auðvitað erum við soltin þjóð í menningargeiranum og það er verið að hella pening í skuldasúpur. En við sem höldum upp á Skaftfelling látum okkur þó dreyma um að setja að minnsta kosti á hann lítið stýrishús eins og var,“ segir Þórunn. Hún segir Skaftfelling happaskip sem fyrir utan að flytja varning til fólksins við suðurströndina hafi bjargað mannslífum. „Eitt sinn skutu Bretar niður þýskt skip og skipverjar á Skaftfellingi fiskuðu upp Þjóðverjana undir fallbyssukjöftum Breta. Þessi saga felst í þessu skipi fyrir utan allar hinar.“Málþingið stendur frá klukkan 14 til 17. Það er hluti af kynningarátakinu Leyndardómar Suðurlands sem byrjar á morgun og stendur til 6. apríl.
Menning Mest lesið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Oft upplifir fólk leiða og depurð eftir gott sumarfrí Áskorun Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Stutt í að uppselt verði í heilt og hálft Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira