Létt tónlist og upplífgandi Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 14. mars 2014 13:00 Klarinettuleikarinn Arngunnur segir Schubert-oktettinn fullan af gáska. Fréttablaðið/Valli „
Ég var að læra í Berlín og þar var algengt að það væru Matiné-tónleikar í hádeginu á sunnudögum. Þá gat fólk farið í brönsj annað hvort fyrir eða eftir. Þetta er því dálítið að evrópskri fyrirmynd,“ segir Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari og ljóðskáld, um hádegistónleika Kammersveitar Reykjavíkur í Kaldalóni á sunnudaginn klukkan 12.15. Þar er Schubert-oktettinn sem fluttur verður en hann telst til merkustu kammerverka tónlistarsögunnar. „Þetta er mjög glaðleg tónlist, létt og upplífgandi,“ segir Arngunnur og kveðst vera að spila oktettinn í fyrsta skipti. „Mér hefur alltaf þótt hann áhugaverður og fallegur og það hefur lengi verið á óskalistanum að spila hann,“ segir hún. Flutningurinn tekur nærri klukkustund, en býst Arngunnur við að sveitin spili þetta mæta verk oftar og víðar? „Það gæti verið. Hugmyndir eru uppi um að spila hann í vor, eða að minnsta kosti einhverja kafla úr honum á barnamenningarhátíð.“
Menning Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira