Syngur um ástir stoltra kvenna Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 4. mars 2014 10:00 Antonía Hevesi og Helga Rós Indriðadóttir. „
Aríurnar eru úr óperum eftir Verdi og Strauss og ástin er í brennidepli í þeim öllum,“ segir Helga Rós Indriðadóttir sópran sem er komin suður yfir heiðar til að syngja á hádegistónleikum í Hafnarborg í dag fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins. Ekki snýst efnið þó um eintóma sælu að hennar sögn heldur um mismunandi leiðir stoltra kvenna til að höndla vonbrigði ástarinnar og endurupplifa góða tímann. „Við tökum eina aríu úr óperettunni Leðurblökunni, þar eru ungverskir taktar, kampavín og líkjör. Hún er heldur ekkert af baki dottin hún Rosalinde sem við sögu kemur þar,“ segir Helga Rós glaðlega. Antonía Hevesi stendur fyrir þessum viðburði eins og öðrum hádegistónleikum í Hafnarborg sem jafnan eru fyrsta þriðjudag hvers mánaðar. Þeir eru styrktir af Samfélagssjóði Rio Tinto Alcan og eru öllum opnir meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað klukkan 11.30.
Menning Mest lesið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Ég mun aldrei treysta því að kerfið passi upp á son minn“ Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Sigurjón Sighvatsson hlýtur heiðursverðlaun Lífið Veðurvélin á leið á Hellissand fyrir almyrkvahátíð Tónlist Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp „Ekki hægt að horfa á neitt annað en brjóstin á þér“ Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira