Sebastian Cappelen efstur eftir fyrsta hring í Mississippi 7. nóvember 2014 06:45 Cappelen ásamt kylfusveini sínum á fyrsta hring. AP
Danski kylfingurinn Sebastian Cappelen leiðir á Sanderson Farms Championship sem fram fer á Jackson vellinum í Mississippi en hann lék fyrsta hring á 65 höggum eða sjö undir pari. Það virðist eitthvað við að gera hluti í fyrsta skiptið sem dregur fram það besta í Cappelen en í fyrsta mótinu sínu á Web.com mótaröðinni fyrir hálfu ári sigraði hann á Air Capital Classic mótinu. Sanderson Farms Championship er einnig fyrsta mót hans á PGA-mótaröðinni en Cappelen lék frábært golf og eftir að hafa fengið skolla á fyrstu holuna fylgdi hann því eftir með átta fuglum síðar á hringnum. Í öðru sæti, tveimur höggum á eftir Cappelen eru þeir Scott Pickney, Robert Streb og Nick Taylor á fimm höggum undir pari en margir kylfingar deila fimmta sætinu á fjórum höggum undir, meðal annars fyrrum besti kylfingur heims, David Duval. Annar hringur verður leikinn í dag en bein útsending verður á Golfstöðinni frá klukkan 19:00.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti Brunaði niður brekkuna viku eftir að hafa slitið krossband Sport JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Búast við yfir tuttugu og sex milljón meldingum um veikindi Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira