Eins lítra bíll frá Renault Finnur Thorlacius skrifar 17. september 2014 09:12
Volkswagen XL1 bíllinn sem eyðir aðeins einum lítra á hverja hundrað kílómetra hefur vakið aðdáun og athygli, en hann er nú ekki eini bíllinn sem nær svo lágri eyðslu, það gerir einnig nýr bíll frá Renault. Renault mun sýna sambærilegan sparibauk á bílasýningunni í París sem hefst eftir fáeinar vikur. Þessi bíll frá Renault heitir Eolab og hann er mun léttari en Volkswagen XL1 bíllinn og vegur aðeins 400 kíló. Hann er ólíkur XL1 bílnum að því leiti að hann er búinn rafhlöðu sem getur skilað bílnum fyrstu 60 kílómetrana aðeins á rafmagni og hann nær 120 km hraða án þess að brunavél bílsins komi við sögu. Renault segir að það séu einar 100 nýjungar sem fyrirtækið kynnir í þessum nýja bíl sem gerir það að verkum að hann eyðir svo litlu. Þessar nýjungar muni seinna meir sjást í fleiri gerðum bíla frá Renault. Bíllinn er mjög straumlínulagaður og fyrir vikið mjög sportlegur útlits. Sjá má forvitnilegt myndskeið um þennan tæknilega bíl hér að ofan.
Bílar video Mest lesið Stúlkan sem fór í sjóinn er látin Innlent Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Erlent Stúlka í sjóinn við Reynisfjöru Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Stóra tjaldið fellt og hætt við brennuna vegna óveðurs Innlent Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum Erlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent „Það var töluvert verra veður en spáin sagði“ Innlent Stúlka flutt á sjúkrahús eftir fall í sjóinn við Reynisfjöru Innlent „Við erum auðvitað mjög slegin yfir þessu slysi“ Innlent