Sjö sæta Land Rover Discovery Sport Finnur Thorlacius skrifar 6. ágúst 2014 09:24 Land Rover Discovery Sport
Nýr bíll er í smíðum hjá Land Rover verksmiðjunum bresku, Land Rover Discovery Sport, sem leysa mun af hólmi Land Rover Freelander bílinn sem hefur ekki gengið sem best í sölu undanfarið. Framleiðslu Freelander verður hætt í kjölfarið. Þessi bíll verður með þriðju sætaröðinni og rúmar því 7 manns. Hann bíll er með mýkri línum en margur Land Rover og Range Rover bílinn og straumlínulögun hans mun tryggja minni loftmótsstöðu en flestir bræður hans úr smiðju Land Rover hafa. Bíllinn er byggður á tilraunabílnum Discovery Vision Concept og mun fá sama undirvagn og er undir Range Rover Evoque. Vélarkostirnir i bílnum verða aðallega fjögurra strokka vélar með forþjöppum, eins og svo margir bílaframleiðendur bjóða nú í bílum sínum. Þessi bíll á að kunna ýmislegt fyrir sér í torfærum og verða lítill eftirbátur annarra bíla með Land Rover genin. Lengra verður á milli hjóla á þessum bíl en á hefðbundnum Land Rover Discovery þrátt fyrir að vera öllu minni bíll. Hann á að fara í sölu árið 2016 eða 2017 en verður fyrst sýndur í Evrópu seinna á þessu ári og verður það væntanlega á einhverri af stærri bílasýningu álfunnar áður en árið er liðið.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent