Þessir bílar tapa virði sínu hægast Finnur Thorlacius skrifar 3. júlí 2014 10:45 Porsche Cayenne heldur virði sínu best allra bíla í Bretlandi.
Hluti af kúnstinni að kaupa bíl með skynsömum hætti er að þekkja til þess hversu hratt hver bílgerð tapar virði sínu. Það hljómar skynsamlegt að kaupa bíl sem eyðir litlu og kostar lítið, en ef hann hrynur mjög hratt í virði fýkur sú skynsemi út í veður og vind. Sem dæmi gæti bíll sem kostar 5 milljónir selst aðeins á 2 milljónir 5 árum seinna, en annar sem kostar 6 milljónir selst á 4 milljónir. Sá munur hefði réttlætt eldsneytiskostnað uppá 200.000 á hverju ári frá kaupum. Mikill munur er á því hvað einstaka bílgerðir halda vel virði sínu og hefur bílatímaritið Auto Express í Bretlandi tekið saman lista þeirra 10 bílgerða sem halda best virði sínu þar í landi. Listinn er svona:Porsche CayenneAudi Q3Range Rover EvoqueMorgan RoadsterToyota Land CruiserBMW X3Kia SportageLotus ExigeLand Rover DiscoveryAudi A1 Margir af þessum bílum falla í lúxusbílaflokk og kosta því aðeins meira en bílar sem ekki flokkast þannig. Það gæti engu að síður borgað sig að fjárfesta í þeim bara vegna þess hversu hægt þeir falla í verði með árunum. Kia Sportage er líklega eini bíllinn á þessum lista sem ekki telst í lúxusbílaflokki og ber það vott um smíðagæði Kia. Morgan Roadster og Lotus Exige eru sportbílar sem ekki er framleitt mikið af og gott virði þeirra sem notaðra bíla bæði helgast af því að þeir verða söfnunarbílar sem ekki er til mikið af og líka því að þeir eru vel smíðaðir. Dæmi eru um enn dýrari bíla að virði þeirra falli ekki neitt eða aukist með árunum. Það verður að teljast góð fjárfesting í þeim. Það krefst líka yfirleitt nokkurs fjármagns í upphafi, en á meðan er frábærs bíls notið.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent