Nissan Pulsar til höfuðs Golf Finnur Thorlacius skrifar 4. júní 2014 10:15 Nissan Pulsar.
Mikið er að gerast hjá Nissan þessa dagana og hver nýr eða endurbættur bíllinn streymir á markað. Nissan hefur ekki tekið þátt í slagnum í C-stærðarflokki bíla síðan það hætti framleiðslu á Nissan Almera bílnum árið 2006 vegna dræmrar sölu. Nú skal bætt úr því með glænýjum bíl sem fá mun nafnið Pulsar. Þessum bíl verður att gegn ekki ómerkari keppinautum en Volkswagen Golf, en í þessum flokki bíla eru einnig mjög söluháir bílar eins og Ford Focus, Honda Civic, Toyota Corolla, Mazda3 og Hyundai i30. Nissan segir að Pulsar verði þeirra tæknivæddastur og innihaldi meðal annars blindpunktsvara, hreyfiskynjara sem notar margar myndavélar og vara ökumenn við hættum og akreinaskiptivara. Hægt verður að sérpanta nálgunarvara sem tengist bremsubúnaði bílsins sem tekur völdin af ökumanni ef hann bregst ekki nógu hratt við. Með tilkomu þessa bíls ætlar Nissan að ná toppsætinu af Toyota sem það asíska bílamerki sem selst best í Evrópu árið 2016. Nissan Pulsar verður boðinn með 110 hestafla dísilvél og 115 hestafla bensínvél, sem báðar má einnig finna í Nissan Quasqai. Á næsta ári verður hann einnig í boði með 190 hestafla bensínvél. Pulsar er með sama undirvagn og Quasqai og nýi X-Trail bíll Nissan og þennan undirvagn má einnig finna í bílum frá systurfyrirtækinu Renault. Pulsar verður smíðaður í verksmiðju í Barcelona á Spáni, en þar eru nú einnig smíðaðir jeppinn Pathfinder, Navara pallbíllinn og NV200, sem hvað þekktastur er sem leigubíll í New York borg. Nissan ætlar að smíða 80.000 Pulsar bíla á ári.
Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent