BMW kremur 1.000 rafmagnsbíla Finnur Thorlacius skrifar 23. maí 2014 13:30 Örlítill hluti þeirra riflega 1.000 rafmagnsbíla sem BMW setti í endurvinnslu.
Það er alltaf fremur döpur sjón að sjá nýja bíla eyðilagða og kramda í pönnuköku til endurvinnslu. Sérlega þó ef um flotta og nýtískulega bíla er að ræða. Það var þó einmitt það sem BMW gerði um daginn er þeir gerðu pönnukökustafla úr ríflega 1.000 rafmagnsbílum sem notaðir höfðu verið til þróunar á rafmagnsbílnum BMW i3 sem nú er kominn á markað. Alls smíðaði BMW 1.100 slíka bíla og þegar hlutverki þeirra var lokið voru þeir allir eyðilagðir, nema einir 80 bílar sem nú sjást á götum San Francisco og eru þeir þar notaðir í verkefninu DriveNow car-sharing fleet, en þar býðst fólki að leigja þá í styttri ferðir. Eftir forsvarsmönnum BMW er haft að það hafi alltaf verið meiningin að þessir bílar fengju þessi örlög, líkt og flestir þeir bílar sem smíðaðir eru sem tilraunabílar vegna þróunar á nýjum bílgerðum. Það eru því ansi margir bílarnir sem hljóta þessi örlög þrátt fyrir að margir gætu hugsað sér að eignast þá fyrir lítið. Bílaframleiðendur eru ekki tilbúnir til að þjónustu þessa bíla í framtíðinni og söluumboð um allan heim eru einfaldlega ekki tækjum búin til að sinna þeim. Þeir eru ekki endanleg smíði og margt í þeim sem ekki fer í endanlega framleiðslu. Að sjálfsögðu fjarlægði BMW rafhlöðurnar úr öllum þessum bílum og verða þau áfram notuð, þó ekki í nýjum bílum. BMW i3 rafmagnsbíllinn sem nú er kominn á markað.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent