Nýr Phaeton frá Volkswagen á leiðinni Finnur Thorlacius skrifar 10. mars 2014 10:40 Volkswagen Phaeton.
Sú bílgerð sem margir hafa lengi búist við að Volkswagen hætti framleiðslu á, flaggskipið Phaeton, verður framleiddur áfram og unnið er að endurhönnun hans. Volkswagen segir að í Phaeton hafi komið fram margar nýjungar sem síðar kæmu einnig fram í öðrum gerðum Volkswagen bíla og áfram yrði það svo. Umtalað hefur verið um Phaeton, sem framleiddur er í afar tæknivæddri verksmiðju í Dresden, að Volkswagen tapi talsverðu fé á hverjum framleiddum bíl, en fáir hafa hinsvegar dregið í efa gæði hans. Sömu raddir hafa sagt að Phaeton sé of mikill lúxusbíll fyrir ímynd Volkswagen og að slíkur bíll ætti frekar heima undir merkjum Audi eða enn meiri lúxusmerkja Volkswagewn stórfjölskyldunnar. Lengi hefur því einnig verið haldið fram að betri kaup sé vart hægt að gera en í notuðum Phaeton bílum þar sem endursöluverð þeirra hefur verið ansi lágt og þar fái kaupendur góðan bíl á einstaklega lágu verði. Phaeton bílarnir hafa á undanfönum árum helst selst til Asíu, þar sem nýríkir forstjórar kaupa bílinn í lengri gerð hans og láta bílstjóra aka sér um lúxusbílnum. Eru 80% þeirra pantaðir svartir.
Mest lesið Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent