Ekki vera skítseiði Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 22. febrúar 2014 19:29 „
Maður á ekki að vera skítskeiði og ekki bara að hugsa um sjálfan sig, heldur koma samferðarfólki sínu til aðstoðar , jafnvel þó það kosti einhverjar fórnir”, segir Sigrún Valbergsdóttir, leikstjóri þegar hún var spurð hver boðskapurinn væri í leikritinu „Bróðir minn Ljónshjarta”, sem Leikfélag Selfoss sýnir nú í Litla leikhúsinu við Sigtún. Bróðir minn Ljónshjarta er eftir Astrid Lindgren en verkið þarf vart að kynna fyrir fólki því þetta er ein magnaðasta saga höfundarins. Bræðurnir Karl og Jónatan hittast aftur, eftir stutta jarðneska dvöl, í landinu Nangijala, þar sem sögur eru sagðar við varðeldana. Lífið í Kirsuberjadal mótast af grimma Riddaranum Þengli, sem ásamt eldspúandi drekanum Kötlu ræður þar ríkjum og valda þau skelfingu hvar sem þau koma. Karl og Jónatan, sem kallaðir eru bræðurnir Ljónshjarta, ákveða að berjast við hinn grimma Þengil og svartklæddu Riddarana hans. Tuttugu leikarar taka þátt í sýningunni og eru aðalhlutverk í höndum Baldvin Alans Gunnarssonar, úr Hveragerði, sem leikur Snúð, og Bjarka Þórs Sævarssonar, á Selfossi, sem leikur Jónatan.
Menning Mest lesið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Nígerskt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira