Fastur liður hjá fjölda manns Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 12. desember 2013 14:00 Karlakór Reykjavíkur. Ritari kórsins segir miðað að því að skapa yfirbragð hátíðleika og friðsemdar á tónleikunum um helgina. „
Þetta eru tuttugustu jólin sem Karlakór Reykjavíkur heldur aðventutónleika og þeir hafa verið undir stjórn sama stjórnanda allan tímann. Hann heitir Friðrik S. Kristinsson,“ segir Gunnar H. Helgason, ritari Karlakórs Reykjavíkur, sem hefur sungið með öll tuttugu árin. Hann segir tónleika kórsins vera orðna að föstum lið á aðventunni hjá fjölda manns og nú sé komið að þeim um helgina. Skyldu alltaf vera ný og ný lög á efnisskránni? „Við erum með gömul, sígild jólalög sem halda vinsældum sínum ár eftir ár og að sjálfsögðu bætum við alltaf nýjum við á hverju ári. Til dæmis syngjum við núna rússneskt jólalag eftir Sergei Rachmaninoff sem við höfum verið að æfa undanfarið. Nýir einsöngvarar eru á hverjum jólatónleikum. Í ár er það tenórinn Kolbeinn Ketilsson sem gerði það gott í Carmen með Íslensku óperunni í haust. „Að auki syngur hinn ellefu ára Benedikt Gylfason einsöng í gullfallegu lagi,“ segir Gunnar. „Benedikt er í drengjakór Hallgrímskirkju og er flottur söngvari.“ Undirleikarar á tónleikunum eru Lenka Mátéová orgelleikari, trompetleikararnir Ásgeir H. Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson auk pákuleikarans Eggerts Pálssonar. Gunnar tekur fram að efnisskráin miði að því að skapa það yfirbragð hátíðleika og friðsemdar sem hæfi aðventunni.
Menning Mest lesið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Edda og Sverrir hrepptu Gullbjölluna Bíó og sjónvarp Walking Dead-leikkona látin Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira