Meiri dirfsku, takk Jónas Sen skrifar 5. desember 2013 12:00 La Poesie kammertónlist eftir Þórð Magnússon. Fréttablaðið/Hörður
Tónlist: La Poesie Kammertónlist eftir Þórð Magnússon Smekkleysa Besta tónsmíð Þórðar Magnússonar á þessum geisladiski er Rapsódía fyrir kontrabassa og píanó. Hún er flutt af Þóri Jóhannssyni og Sólveigu Önnu Jónsdóttur. Þar hefur ímyndunarafl tónskáldsins fengið að njóta sín óheft. Rapsódía er einmitt slíkt tónlistarform, mjög frjálslegt, nánast spunakennt. Kontrabassi og píanó er þar að auki óvanaleg samsetning. Samspil hljóðfæraleikaranna á geisladiskinum er svo dínamískt og magnað að unaður er á að hlýða. Frumleiki skáldskaparins í tónlistinni er mergjaður. Maður hefði viljað hafa meira svona; hin verkin eru ekki eins spennandi. Tveir kvartettar, annar fyrir píanó, selló, fiðlu og klarinettu, hinn fyrir saxófóna, eru reyndar stílhreinir og snyrtilegir, en ekkert sérstaklega aðlaðandi. Ljóðrænir kaflar koma vissulega fyrir, en þó er hvergi nein laglína sem er reglulega grípandi. Fyrir bragðið virkar tónlistin eins og stílæfing. Tónskáldinu virðist ekki liggja neitt á hjarta með henni. Enn síðri er „Það mótlæti þankinn ber“ sem er upphaflega fyrir hljómsveit en er hér í umritun fyrir tvö píanó. Þau Anna Guðný Guðmundsdóttir og Snorri Sigfús Birgisson leika prýðilega, en klisjur úr píanótónlist frá fyrri hluta 20. aldarinnar (Stravinskí sérstaklega) eru svo áberandi að það er hálf bagalegt. Þórður er greinilega efnilegt tónskáld, en hann mætti slaka meira á og leyfa sér að vera djarfur og skemmtilegur. Rapsódían fyrir kontrabassann og píanóið sannar að hann getur það.Niðurstaða: Fagmannlega unnin tónlist, en vantar oft sjarma.
Gagnrýni Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors-stjarna Bíó og sjónvarp Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira