Sveinki alltof seinn að gefa í skóinn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 29. nóvember 2013 12:00 Allir leikendurnir hafa æft tvö hlutverk sem þeir leika til skiptis í sýningunum í Iðnó. Fréttablaðið/Stefán „
Þetta verk fjallar um unga og óstýriláta stúlku sem elst upp hjá pabba sínum en er óhamingjusöm því hana vantar aðra athygli en þá að eignast dýra hluti. Hún fær frekjuköst og hann heldur áfram að vinna og vinna til að geta keypt meira. Hennar góða og vonda sjálf tala við hana öðru hvoru og svo hefur alheimsviskan samband við hana líka og reynir að innprenta henni betri siði. Hjálpræðisherinn kemur líka við sögu og nútímalegur jólasveinn sem er alltof seinn að gefa í skóinn – öll jólaleikrit verða að hafa jólasvein!“ Þetta segir Erla Ruth Harðardóttir, höfundur handrits og leikstjóri fjölskyldu- og jólasöngleiksins Jólanótt Viktoríu, sem verður frumsýndur í Iðnó í kvöld. Átján leikarar á aldrinum ellefu til fimmtán ára leika þar og syngja. Þeir tilheyra barna-og unglingaleikhúsinu Borgarbörnum. Söngstjóri er Rebekka Sif Stefánsdóttir og danshöfundur Auður Finnbogadóttir. Tíu vinsæl lög með íslenskum texta eru sungin í verkinu, meðal annars eitt af lögum Of Monsters and Men, Little Talks. Þetta er í áttunda skipti sem Borgarbörn frumsýna jólasöngleik í aðdraganda jóla og hafa sýningarnar ávallt verið í efstu sætunum yfir mest sóttu áhugamannasýningar landsins.
Menning Mest lesið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Bay segir skilið við Smith Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira