Hinsegin bókavaka í Iðu 28. nóvember 2013 11:00 Meðal þeirra sem lesa úr verkum sínum í Iðu Zimsen á laugardagskvöldið er Sjón sem les úr skáldsögu sinni Mánasteini. Fréttablaðið/Arnþór
Bókaverslunin Iða efnir til bókmennta- og upplestrarveislu í versluninni Iðu Zimsen á Vesturgötu á laugardagskvöldið klukkan 18. Tilefnið er að meðal útgáfuefnis á þessu ári eru óvenjumargar bækur sem fjalla um líf og reynslu samkynhneigðs fólks, bæði frumsamið íslenskt efni, skáldskapur, minningar og fræðirit svo og þýðingar merkra bóka. Á hinsegin bókavöku Iðu les Jónína Leósdóttir upp úr minningum sínum, Við Jóhanna, og Sjón les upp úr nýrri skáldsögu sinni, Mánasteinn – drengurinn sem aldrei var til. Einnig les Ásdís Óladóttir upp úr ljóðabók sinni, Innri rödd úr annars höfði, sem kemur út á næstunni. Af öðru efni íslensku sem lesið er upp úr er fræðirit Gunnars Karlssonar sagnfræðings, Ástarsaga Íslendinga að fornu, þar sem hann fjallar meðal annars um forna íslenska vitnisburði um fólk sem elskaði sitt eigið kyn. Tvær þýðingar sem flokka má sem hinsegin bækur eru í hópi útgáfubóka ársins: Austurríska minningasagan Mennirnir með bleika þríhyrninginn, sem lýsir reynslu homma í fangabúðum nasista í heimsstyrjöldinni síðari, og annar hluti þríleiksins Þerraðu aldrei tár án hanska eftir sænska rithöfundinn Jonas Gardell, Sjúkdómurinn. Stjórnandi bókavökunnar og kynnir í Iðu Zimsen er Þorvaldur Kristinsson. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Menning Mest lesið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið Íhuga að skrifa bók um kaffihúsin á þúsund kílómetra hjólarúnti Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira