Gullmiðanum svokallaða verður útbýtt eftir viku Jakob Bjarnar skrifar 25. nóvember 2013 19:00 Andri Snær Magnason gaf út flotta barnabók og ætti að vera tilnefndur til hinna íslensku bókmenntaverðlauna. Vigdís Grímsdóttir á skilið Gullmiðann samkvæmt viðmælendum Fréttablaðsins. Guðmundur Andri Thorsson þykir koma sterklega til greina í flokki fagurbókmennta.
Þann 1. desember verður Gullmiðanum svokallaða útdeilt; tilnefningum til hinna íslensku bókmenntaverðlauna – verðlauna bókaútgefenda. Veruleg spenna er ríkjandi meðal rithöfunda sem og áhugafólks um bókmenntir. Fréttablaðið heyrði ofan í fjölda fólks sem tengist bókaútgáfu og reyndi að draga upp mynd af því hverjir mega teljast líklegastir til að fá miða. Gullmiðinn er mikilvægur, ekki bara heiðurinn sem því fylgir að fá slíkan miða heldur skiptir það miklu máli í jólabókaflóði að geta límt gullinn miða á plast bókar sinnar. Nánast eins og korkur, líklegra er að bókin fljóti og veki athygli.Tími Guðmundar Andra kominn Fréttablaðið heyrði ofan í fjölda manns, áhuga- og atvinnumenn í bókageiranum sem þekkja vel til. „Mér finnst tvímælalaust að tilefna eigi Vigdísi Gríms, Þórunni Erlu Valdimarsdóttur og Sjón. Svo er þetta spurning með Jón Kalman og Guðmund Andra Thorsson. Þeir hljóta að koma til greina,“ segir einn sem stöðu sinnar vegna getur ekki sett fram spá opinberlega. Og það á við um alla viðmælendur: „Skáldsaga ársins hlýtur að vera Össur... Nei, án gríns þá held ég að Andri Snær Magnason fái barnabókaverðlaunin, Guðmundur Andri tekur 1. sætið í fagurbókmenntunum, hans tími er kominn, og svo held ég að Sölvi Björn fái verðlaunin í flokki fræðibóka fyrir bækur sínar um veiðar og vatnasvæði. Raunar ætti hann að geta unnið í flokki fagurfræði líka. Því bókin er bæði fagur og fræði.“ Enn einn sem þekkir vel til var mjög afgerandi í sinni spá: Í flokki fagurbókmennta er það Þorsteinn frá Hamri með Skessukatla. „Þjóðskáldið upp á sitt besta!“ Skuggasund eftir Arnald Indriðason. „Arnaldur er orðinn einn færasti rithöfundur þjóðarinnar. Ekki bara vinsælastur heldur líka sprúðlandi talent,“ segir harðákveðinn viðmælandi blaðsins og bendir á að Arnaldur hafi sjaldan eða aldrei fengið betri dóma en nú: „Sæmd. Guðmundur Andri Thorsson er einn fremsti stílisti þjóðarinnar með fágaða og góða bók og svo Dísu saga eftir Vigdísi Grímsdóttur. Frábær og nærgöngul bók.“ Enn annar viðmælandi nefnir Jón Kalman sem vænlegan kandídat með Fiskar hafa enga fætur. „Hann er sá sem mig langar að eyða jólunum með.“ Sá spáir einnig Vigdísi, Guðmundi Andra, Sjón og Þórunni Erlu Valdimarsdóttur góðu gengi í flokki fagurbókmennta.Sölvi Björn heitur í fræðunum En, þó fókusinn sé oftar en ekki á fagurbókmenntirnar er spennandi að sjá hvað kemur upp úr dúrnum með fræðibækurnar. Þar heyrir Fréttablaðið nefndar bækur á borð við Fjallabókina eftir Jón Gauta Jónsson, Sigrúnu og Friðgeir eftir Sigrúnu Pálsdóttur. „Sigrún sýndi það í bókinni Þóra biskups að hún gefur maka sínum, Braga Ólafssyni, ekkert eftir. Þetta er ein áhugaverðasta bók jólanna,“ segir einn álitsgjafa Fréttablaðsins. Sölvi Björn Sigurðsson hefur verið nefndur og þá er vert að hafa auga með bókinni Vatnið í náttúru Íslands eftir Guðmund heitinn Pál Ólafsson. „Hef ekki séð þessa ennþá en get ekki ímyndað mér annað en að hér fari mikið stórvirki, enda Guðmundur Páll höfundur mikilla þrekvirkja.“ Og undir það tekur annar álitsgjafi sem nefnir einnig til sögunnar bók Aðalsteins Ingólfssonar um Karólínu Lárusdóttur og Kamban eftir Svein Einarsson. „Í handbókum held ég að Handrit úr fórum Árna Magnússonar í samantekt Svanhildar Óskars eigi allt gott skilið, sem og Ódáinsakurinn hans Jóns Karls Helgasonar.“Barnabækurnar komnar á kortið „Gaman að loks sé kominn flokkur fyrir barnabókmenntirnar. Þar spái ég að saga Sifjar Sigmarsdóttur, Múrinn, verði sigursæl. Andri Snær kemur sterkur inn með Tímakistuna, væntanlega og Úlfshjarta Stefáns Mána á meira en skilið að fá tilnefningu. Fyrir yngstu börnin þá finnst mér að Saga um nótt eftir Evu Einars og Lóu H. Hjálmtýsdóttur komi til greina og í lokin verð ég að nefna yndislega bók sem heitir Brosbókin eftir Jónu Valborgu Árnadóttur og Elsu Nielsen,“ segir einn viðmælenda með sinn spádóm. Annar kemur brattari inn og telur engan vafa leika á að Tímakista Andra Snæs fái Gullmiða. Hann veðjar á Vísindabók Villa og Draumsverð eftir Kjartan Yngva og Snæbjörn Brynjarsson. „Þessir strákar hlutu íslensku barnabókaverðlaunin í fyrra, fyrir fyrstu bókina í þessari seríu.“ Og þessi viðmælandi telur ekki vert að líta fram hjá leikaranum Gunna Helga með Rangstæður í Reykjavík. Hann nefnir einnig Sif til sögunnar þannig að hún telst líkleg með sína fyrstu bók.
Mest lesið „Ég er óléttur“ Lífið Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum Lífið Fékk leyfi Nóbelskálds fyrir heiti nýrrar bókabúðar í Hamraborg Menning Kynlífssena sautján ára stúlku hafi splundrað samstarfi bræðranna Bíó og sjónvarp „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Lífið Er Ormstunga djarfasta sýning ársins? Gagnrýni Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Tíska og hönnun Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Lífið Gert til að efla hvatberana og frumurnar Lífið Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Lífið samstarf Fleiri fréttir Gert til að efla hvatberana og frumurnar Sló í gegn sem barn en nú fyrsta konan á toppi listans frá aldamótum „Ég er óléttur“ „Pabbi hefði snúið sér við í gröfinni hefði ég hætt við” Bullandi stemning hjá Blikum Elskaði Elvis áður en hann byrjaði að labba Palli og Edgar fagna sambandsafmæli Steinunn Ólína í „friðarinnlögn“ með kæró Kepptu í því að kveikja eld og klifra upp klifurturn Ráðherrann brunar af þingfundi til að horfa á leikinn Á móti vasapeningum og gæfi barni aldrei debetkort Sweeney í vanda fyrir að klæða Hollywood-skiltið í brjóstahaldara Í öndunarvél eftir blóðeitrun Eins og gangandi beinagrindur með húðflygsur á sér Draugur Lilju svífur yfir vötnum Þórdís og Júlí eiga von á öðru barni Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“ Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu „Amma sagði alltaf að við værum líkir“ Kristrún, Sólrún Diego og Jón Jónsson sáu Galdrakarlinn í Oz Fréttatían: Pólitíkin, flug og söngleikir Sveppi þvoði hnausþykkt hár Eiðs Smára Féll eftir tuttugu ára edrúmennsku Ragga Theó fann ástina hjá Davíð Þór Ólst upp með lítið á milli handanna og fór ung að vinna í fiski Stjörnulífið: Fáklædd í fimbulkulda Bríet og Pálmi takast á fyrir dómstólum „Er eðlilegt að kynlíf taki af mér stjórn og að ég sé upptekinn af kynlífi flesta daga?“ Gisti þar sem Verdi andaðist fyrir hreina tilviljun Dagurinn þegar Bessastaðatjörn varð vettvangur harmleiks Sjá meira
Gengst við geðhvarfasýki og biðst afsökunar: „Hlutirnir urðu verri því lengur sem ég hundsaði vandamálið“