Freyja Potter í Dónol Halla Þórlaug Óskarsdóttir skrifar 21. nóvember 2013 12:00 Freyjusaga - Múrinn eftir Sif Sigmarsdóttur
Bækur: Freyjusaga: Múrinn Sif Sigmarsdóttir Mál og menning Múrinn eftir Sif Sigmarsdóttur er fyrsta bókin í sagnabálkinum Freyju sögu. Í sögunni er gert ráð fyrir að svokallaðir landflutningar muni eiga sér stað eftir tæpa tvo áratugi (frá því þessi ritdómur er skrifaður) þar sem hafið flæðir upp á land og heimurinn umturnast í kjölfarið. Sagan gerist í framtíðarborginni Dónol, þar sem illræmdi einvaldurinn Zehn ræður ríkjum. Lífsskilyrðin í Dónol eru framandi íslenskum unglingum. Rafmagn er óþekkt og rottur hlaupa um myrkar og illa þefjandi götur borgarinnar, sem er afgirt með rammgerðum múr. Borgarbúar fá ekki að velja sér starfsvettvang eftir áhugasviði heldur er þeim skipað í lífstíðarstarf þegar þeir eru fimmtán ára. Aðalsöguhetjan, Freyja, er einmitt á þeim tímamótum þegar sagan hefst. Hún virðist í fyrstu ósköp venjuleg unglingsstúlka sem býsnast kannski ívið mikið yfir ástandinu í borginni og hefur furðulega mikinn áhuga á fortíðinni. Þegar líður á söguna kemur í ljós að hlutverk hennar reynist stærra en hún hafði ímyndað sér. Bókin er lengi að komast af stað, enda þarf að kynna framandi sögusviðið vandlega fyrir lesandanum, hugsanlega hefði mátt slípa fyrstu kaflana örlítið til. Þegar atburðarásin hins vegar kemst á skrið verður hún æsispennandi. Uppbyggingin er nokkuð dæmigerð og sagan er hressileg blanda af Harry Potter og Hungurleikunum. Hugsanlega mætti segja að Freyja minni stundum ískyggilega mikið á galdrastrákinn knáa. Sagan er reyndar sögð út frá tveimur sjónarhornum, því inni á milli eru skáletraðir kaflar þar sem við heyrum rödd annars sögumanns. Þessi flækja er vel heppnuð og eykur spennuna. Höfundi tekst að búa til sannfærandi heim þar sem allt gengur upp og greinilegt er að forsagan, baksagan um tilurð hinnar ímynduðu distópíu, er úthugsuð líka. Lesandinn sekkur þannig inn í heim fantasíunnar í öruggum höndum höfundarins. Bókin er dæmigerð fantasía og í heild sinni vel skrifuð, aldrei nokkur yfirlætistónn í henni. Hún er spennandi, þrátt fyrir að vera lengi í gang, og hún ætti að höfða til ævintýraþyrstra ungmenna á öllum aldri – og skilja við þau óþreyjufull eftir næstu bók.Niðurstaða: Vel skrifuð og spennandi fantasía sem ætti að höfða til ævintýraþyrstra ungmenna.
Gagnrýni Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Karl Th. Birgisson er látinn Lífið „Ég ætlaði í lögfræði en tónlistin tók völdin“ Tónlist Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Lífið Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Lífið Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Bíó og sjónvarp Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Fleiri fréttir Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Kulnaður Köngulóarmaður skýtur klístruðum púðurskotum Sjá meira