Heiðra John Speight Friðrika Benónýsdóttir skrifar 8. nóvember 2013 13:00 CAPUT hópurinn "Það er okkur mikil ánægja að heiðra John Speight með portretttónleikum,” segir Eydís Franzdóttir.
CAPUT hópurinn heldur tónleika til heiðurs tónskáldinu John Speight í 15:15 tónleikasyrpunni í Norræna húsinu á sunnudaginn klukkan 15:15. „Þetta er í fyrsta sinn sem CAPUT hópurinn flytur verk eftir John Speight,“ segir Eydís Franzdóttir, óbóleikari hópsins. „Hann hefur einhvern veginn alveg orðið útundan hjá okkur þannig að það er okkur mikil ánægja að heiðra hann með portretttónleikum. Verk hans eru afar litrík, sönghæf og falleg og því sérstakt tilhlökkunarefni hjá hópnum að takast á við þau og leika fyrir áheyrendur,“ segir Eydís. Tónleikarnir hefjast á nýju verki; Canto Doloroso til minningar um Þorkel Sigurbjörnsson. Verkið er samið fyrir einleiksóbó og verður þetta frumflutningur þess. Þá verður fluttur lagaflokkurinn The Lady in White frá 1997 við ljóð Emily Dickinson, Verses and Cadenzas fyrir klarínettu, fagott og píanó frá 1979, Out of a Gothic North fyrir fiðlu, selló og píanó frá 1996 og loks frumflutningur verksins Cantus V – saxófónkonsert fyrir tenórsaxófón og kammersveit. Lokaverk tónleikanna verður svo kraftmikið kammerverk, Proud Music of the Storm, fyrir flautu, klarínettu og strengjakvartett frá 1995. Einleikari er Ólafur Jónsson tenórsaxófónleikari, Eydís Franzdóttir óbóleikari frumflytur verkið Canto Doloroso, einsöngvari er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran en stjórnandi Guðni Franzson.
Menning Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira